Upplausn í ríkisstjórn Grikklands, neyðarfundur í hádeginu 3. nóvember 2011 09:33
Ríkisstjórn Grikklands er í upplausn eftir að nokkrir ráðherrar innan hennar hafa lýst sig mótfallna ákvörðun George Papandreou forsætisráðherra landsins að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um samkomulagið við Evrópusambandið um skuldavanda landsins. Fjármálaráðherrann gaf það út í gær að hann myndi ekki styðja ákvörðun Papandreou. Í dag hafa tveir aðrir ráðherrar, þar á meðal landbúnaðarráðherrann lýst sömu skoðun. Þá hefur mennta- og kirkjumálaráðherra landsins sagt að hún muni gera allt í sínu valdi til að komast hjá þjóðaratkvæðagreiðslunni. Gríska stjórnin hefur verið boðuð til neyðarfundar í hádeginu í dag og spurningin er hvort Papandreou verði enn forsætisráðherra í lok dagsins. Þá hafa nokkrir stjórnarþingmenn lýst yfir andstöðu sinni við ákvörðun Papandreou og segjast ekki munu styðja hann í vantrausttillögu gegn stjórninni sem verður lögð fram á gríska þinginu á morgun, föstudag. Papandreou hefur því misst meirihluta sinn á þinginu og sennilegt að vantraust á stjórn hans verði samþykkt.
Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira