Forseti Barcelona vill fækka liðum í ensku úrvalsdeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. nóvember 2011 12:15 Sandro Rosell, forseti Barcelona. Nordic Photos / Getty Images
Sandro Rosell, forseti Barcelona, er með róttækar hugmyndir um hvernig auka má vægi stórra leikja í Meistaradeild Evrópu. Rossell er líka varaforseti samtaka knattspyrnufélaga í Evrópu og vill að leikir í Evrópukeppnum, Meistaradeild Evrópu og Evrópudeild UEFA, fari líka fram um helgar. „Við verðum að sannfæra ensku úrvalsdeildina um að fækka liðum úr 20 í 16,“ sagði Rosell í ráðstefnu sem var haldin á Doha í Katar á dögunum. „Það væri til dæmis hægt að láta Barcelona og Manchester United spila á laugardegi,“ bætti hann við en Evrópuleikir fara nú fram í miðri viku. Hann segir að til þess að það verði mögulegt verði að fækka liðum í stærstu deildum Evrópu - á Englandi, Spáni og Ítalíu. „Það er eitthvað sem allar deildirnar verða að samþykkja. Markmiðið er að fækka liðunum í 16 svo að leikmenn fái meira andrými.“ Hann segir þó að landsliðin eigi ekki að fá að njóta góðs af þessu. „Þessir frídagar eru til þess að félagslið geti spilað fleiri vináttuleiki eða þá til að auka vægi Evrópukeppnanna. Þetta eru ekki dagar fyrir knattspyrnusambönd landanna.“ Samningur er í gildi á milli áðurnefnda samtaka og Knattspyrnusambands Evrópu um þáttöku stærstu liða álfunnar í Meistaradeild Evrópu. Sá samningur rennur út árið 2014 og er óvíst að nýr samningur verði gerður. „Ef okkur tekst ekki að komast að samkomulagi sem hagnast báðum aðilum áskiljum við okkur rétt til að koma á fót okkar eigin keppni á milli bestu liða Evrópu.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira