Rúm 60% segja já við Icesave 25. febrúar 2011 07:00 Icesave.
Ríflega sex af hverjum tíu segjast ætla að samþykkja samkomulagið sem náðst hefur við Hollendinga og Breta í Icesave-deilunni í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls segjast 61,3 prósent þeirra sem afstöðu taka til samningsins ætla að samþykkja hann í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en 38,7 prósent ætla að hafna honum. Stór hluti kjósenda, um 29,6 prósent, á enn eftir að gera upp hug sinn samkvæmt könnuninni. Um 3,5 prósent sögðust ekki ætla að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Meirihluti þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna og Vinstri græn, yrði kosið til þings núna, ætlar að samþykkja Icesave-samninginn. Yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna Framsóknarflokksins segist ætla að hafna samningnum.Alls sögðust um 22 prósent framsóknarmanna ætla að samþykkja samninginn. Um 65 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins ætla að styðja samninginn, 76 prósent þeirra sem styðja Samfylkinguna og 89 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna. Útreikningur á afstöðu stuðningsmanna Hreyfingarinnar er ekki tölfræðilega marktækur. Í könnun MMR, sem gerð var dagana 20. til 21. febrúar, sögðust 57,7 prósent myndu samþykkja Icesave-samninginn en 42,3 prósent sögðust myndu hafna honum. Hringt var í 800 manns miðvikudaginn 23. febrúar og fimmtudaginn 24. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Ætlar þú að samþykkja Icesave-samkomulagið eða hafna því í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu? Alls tóku 63,4 prósent afstöðu til spurningarinnar.- bj
Icesave Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira