Innlent

Um­ferðar­slys í Bolungar­vík

Eiður Þór Árnason skrifar
Lögreglan nýtir tækifærið og hvetur ökumenn, óreynda sem reynda, að haga akstri í samræmi við umferðarlög og aðstæður.
Lögreglan nýtir tækifærið og hvetur ökumenn, óreynda sem reynda, að haga akstri í samræmi við umferðarlög og aðstæður. Vísir/arnar

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í Bolungarvík með þeim afleiðingum að bifreiðin endaði á ljósastaur inni í bænum. Sá var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði með minni háttar áverka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu og að atvikið hafi átt sér stað 28. október. Ökumaður, sem hafi verið nýkominn með sitt fyrsta ökuskírteini, hafi gerst sekur um ógætilegan akstur á Standvegi í áttina að Bolungarvík og talinn hafa verið á 110 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar.

Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði ásamt því að honum var gert að greiða 170 þúsund króna sekt, að sögn lögreglu. Þá þurfi hann að sækja sérstakt námskeið áður en hann getur öðlast ökuréttindi á ný.

„Aksturslag sem þetta er að sjálfsögðu dauðans alvara. En sem betur fer urðu líkamlegir áverkar ekki alvarlegir. Bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn ásamt því að ljósastaurinn eyðilagðist,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×