Margrét skrifar ævisögu Ellýjar 12. maí 2011 15:00 Einstök söngkona Margrét Blöndal skrifar nú ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands. Ellý er fyrir miðju ásamt þeim Ragnari Bjarnasyni og Þuríði Sigurðardóttur.F51110511 Blöndal
Margrét Blöndal, útvarpskonan góðkunna af Rás 2, hefur síðastliðna tvo mánuði unnið að gerð ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands. Ævisaga bróður Ellýjar, Vilhjálms Vilhjálmssonar, eftir Jón Ólafsson kom út fyrir tveimur árum. „Þetta er okkar fremsta og dáðasta söngkona og þetta er þvílíkt ævintýri að takast á við,“ segir Margrét í samtali við Fréttablaðið. Hún bætir því við að þetta sé jafnframt vandasamt því Ellý hafi alla tíð verið ákaflega annt um sitt einkalíf og viljað halda því útaf fyrir sig. „Og maður stekkur ekkert af stað með fólk sem hélt lífi sínu algjörlega fyrir sig.“ Margrét hefur verið að viða að sér heimildum, hefur rætt við fólk sem vann með Ellý og fær jafnframt aðganga að kössum sem synir söngkonunnar, Nökkvi og Máni Svavarssynir, hafa passað. „Hvað kemur upp úr þeim kössum verður síðan bara að koma í ljós.“ Ellý átti ótrúlegan feril sem söngkona og Margrét segir að hún hafi heillað fólk upp úr skónum um leið og hún steig á svið. „Hún var óskaplega falleg, með þessa fallegu rödd og hún varð stjarna án þess að gera nokkuð í því.“ Margrét segir stefnt að því að bókin komi út í nóvember en það er útgáfufélagið Sena sem stendur að útgáfunni.- fgg
Lífið Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira