Allar gerðir af rúðum í boði 21. júlí 2011 11:00 @Concept_myndatextar:Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður.mynd/anton
Á verkstæði Bílrúðunnar starfar aðeins menntað fagfólk. mynd/anton Bílrúðan er rótgróið fyrirtæki í miðbænum en þar er skipt um allar tegundir bílrúða og hægt að panta tíma með eins dags fyrirvara. Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyrirtæki,“ segir Jakob Þórarinsson, framkvæmdastjóri Bílrúðunnar, eins elsta starfandi fyrirtækis á sviði bílrúðuskipta á Íslandi. „Við flytjum inn rúður, skiptum um og gerum við rúður,“ segir Jakob og tekur fram að nóg sé að panta tíma hjá Bílrúðunni með eins dags fyrirvara. Skipt sé um rúðurnar samdægurs en það taki fjóra til fimm klukkutíma. Jakob segir að þegar Bílrúðan var stofnuð árið 1972 hafi fyrirtækið smíðað rúðurnar sjálft. Síðustu tuttugu árin hafi það flutt þær inn. „Þetta voru orðnar svo stórar og flóknar rúður,“ segir Jakob en Bílrúðan flytur inn rúður frá Sant-Gobain Sekurit sem er að hans sögn „einn stærsti „orginal“ bílrúðuframleiðandi í heiminum í dag.“ Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður. „Við erum með rúður á lager í allar bíltegundir. Svo getum við útvegað alls konar rúður með skömmum fyrirvara ef við eigum þær ekki,“ segir Jakob og bætir við að á Bílrúðunni sé einungis notað viðurkennt efni. Hann lýsir svo viðgerðum á skemmdum á rúðum: „Þegar gert er við minniháttar skemmdir á rúðunum þá fellur eigin áhætta niður og þá þarf eigandi ekki að borga neitt. Það er engin sjálfsábyrgð á því,“ upplýsir hann en Bílrúðan er viðurkennd af öllum tryggingafélögunum. Hverjir leita helst til ykkar? „Það eru bæði einstaklingar og fyrirtæki. Við sinnum mörgum stórum bílaumboðum og flestum stærstu bílaleigunum,“ upplýsir Jakob en á verkstæðinu starfar einungis menntað fagfólk. „Við leggjum mikla áherslu á það að allir séu menntaðir í því sem þeir eru að gera. Framrúðurnar eru burðarvirkið í bílnum þegar lent er í tjóni, þannig að þetta þarf að vera vel gert,“ segir Jakob og heldur áfram: „Við erum líka réttingaverkstæði og málningarverkstæði þannig að við getum gert svo mörgu skil. Við erum alhliða réttingaverkstæði.“ Bílrúðan er til húsa að Grettisgötu 87 í Reykjavík. „Við erum á Grettisgötunni, milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs, alveg við Hlemm. Við erum á góðum stað og með nóg af bílastæðum.“ Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.bilrudan.is og í símum 552-5780 og 552-5755.@Concept_myndatextar:Nóg er að panta tíma með eins dags fyrirvara hjá Bílrúðunni, að sögn Jakobs.mynd/anton@Concept_myndatextar:Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyrirtæki sem er við Grettisgötu í Reykjavík og er nóg af bílastæðum hjá fyrirtækinu.mynd/anton
Sérblöð Mest lesið „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira