Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Klettur 16. september 2026 11:15 Klettur samstarf Rafvæðing bílaflotans hefur verið hröð undanfarin ár og nú eru þungaflutningar í auknum mæli farnir að fylgja sömu þróun. Hjá Kletti, umboðsaðila Scania á Íslandi, er nú komin í sölu þriðja kynslóð rafmagnsvörubíla Scania. Þar er ekki um eina staðlaða lausn að ræða heldur fjölbreytt úrval bíla sem hægt er að útfæra eftir verkefnum, allt frá vörudreifingu og sorphirðu upp í þunga flutninga. „
Það sem skiptir mestu máli við þessa nýju kynslóð er hversu mikla möguleika við höfum til að laga bílinn að verkefninu. Við getum í raun klæðskerasniðið hvern bíl eftir því hvað viðskiptavinurinn ætlar að nota hann í,“ segir Bjarni Arnarson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála hjá Kletti. Scania hefur unnið markvisst að þróun rafmagnsvörubíla undanfarin ár og rúm þrjú ár eru síðan fyrstu vörubílarnir komu á götuna hér á landi. Rafknúnir Scania-vörubílar af fyrstu kynslóð eru nú í notkun á Íslandi og sinna ólíkum verkefnum, t.d. sorphirðu og vörudreifingu. Faxaflóahafnir eru einnig með 100% rafknúinn vörubíl með krana og palli. Frá vinstri: Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri lykilviðskiptavina hjá Styrkás, Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts og Bjarni Arnarson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Kletti. Að sögn Bjarna hefur reynslan af bílunum verið mjög góð og með þriðju kynslóðinni hefur úrvalið stóraukist. „Við erum nú komin með mjög breitt úrval rafmagnsvörubíla yfir 16 tonn. Við getum boðið fjölbreyttar útfærslur, meðal annars tveggja drifa og fjögurra öxla bíla, og mismunandi stærðir rafmótora og rafhlaðna. Það opnar miklu fleiri möguleika en áður.“ Heildardráttargeta er allt að 74 tonn. Ekki alltaf stærsta rafhlaðan sem er best Eitt af því sem einkennir nálgun Scania er að rafhlöðustærð og drægni eru metin út frá raunverulegri notkun bílsins. Stærri rafhlaða þýðir vissulega meiri orku en jafnframt meiri þyngd.Sú þyngd getur komið niður á burðargetu vörubílsins. Við getum í raun klæðskerasniðið hvern bíl eftir því hvað viðskiptavinurinn ætlar að nota hann í. Þess vegna snýst valið ekki endilega um að koma stærstu mögulegu rafhlöðunni fyrir í hverjum bíl heldur um að finna besta jafnvægið á milli drægni og burðargetu. „Ef bíllinn er í vinnu þar sem 300 kílóvattstunda rafhlaða dugar vel er engin sérstök ástæða til að setja 600 kílóvattstundir í hann,“ segir Jóhannes Georgsson, sölustjóri Scania hjá Kletti. „Rafhlöðurnar eru þungar og því stærri sem þær eru, því meiri þyngd ertu að flytja með þér. Markmiðið er að finna þá útfærslu sem hentar verkefninu best.“ Í boði eru fjölbreyttar rafhlöðusamsetningar (e. battery configurations) og Scania getur boðið rafhlöður upp í 625 kílóvattstundir í hefðbundnum dráttarbílum og allt að 720 kílóvattstundir í grindarbílum. Möguleikarnir ráðast þó alltaf af útfærslu bílsins, hjólhafi, þyngd og þeirri vinnu sem honum er ætlað að sinna. Setja vinnudaginn inn í hermiforrit Til að finna réttu lausnina þarf ekki að treysta á ágiskanir. Klettur hefur aðgang að hermiforriti frá Scania þar sem hægt er að setja inn upplýsingar um raunverulegan akstur viðskiptavinarins og reikna út orkuþörf bílsins. „Við förum einfaldlega yfir þetta með viðskiptavininum: Hvar ertu að vinna? Hvert ertu að keyra? Hversu þungur er bíllinn og hvernig lítur vinnudagurinn út?“ segir Bjarni. „Síðan getum við sett leiðina inn í líkan ásamt meðal annars þyngd og hitastigi og séð hver orkuþörfin er. Þannig getum við byggt ráðgjöfina á raunverulegri notkun.“ Þetta getur skipt miklu þegar fjárfest er í nýjum rafmagnsvörubíl. Bíll sem ekur tiltölulega stuttar vegalengdir frá sömu starfsstöð á hverjum degi hefur allt aðrar þarfir en bíll sem fer langar leiðir með þungan farm. Klettur fór því varlega af stað þegar fyrstu rafmagnsvörubílarnir komu til landsins og lagði áherslu á að velja verkefni sem hentuðu tækninni vel. Með aukinni drægni og fleiri útfærslum hefur notkunarsviðið hins vegar stækkað verulega. „Fyrirtæki sem keyra mikið út frá heimastöð og koma þangað aftur að kvöldi eru mjög áhugaverður hópur,“ segir Jóhannes. „Nú eru möguleikarnir orðnir það miklir að við erum að fá tveggja drifa, 49 tonna dráttarbíl með 625 kílóvattstunda rafhlöðu. Slíkur bíll getur sinnt verkefnum sem ná töluvert lengra út fyrir höfuðborgarsvæðið.“ Ný upplifun undir stýri Rafdrifið breytir líka akstursupplifuninni sjálfri. „Bíllinn bregst hratt og örugglega við, hröðunin er góð og aksturinn hljóðlátari og mýkri. Með eins fótstigs akstri (e. one-pedal driving) nýtist endurheimt hemlunarorku (e. energy regeneration) jafnframt betur, sem eykur orkunýtni. Hægt er að hraðhlaða bílana, sem styttir hleðslutíma umtalsvert og tæknin heldur áfram að þróast hratt. Hjá Kletti leggja menn þó áherslu á að drægni og hleðslutími ráðist af mörgum þáttum, meðal annars stærð rafhlöðunnar, hleðslustöðu, þyngd bílsins og notkun. „Það er auðvelt að setja eina stóra tölu á drægni eða hleðslutíma en raunveruleikinn er flóknari,“ segir Bjarni. „Við viljum frekar skoða verkefnið sem bíllinn á að sinna og finna út frá því lausn sem virkar í daglegum rekstri.“ Við fengum ekki vottun frá Scania fyrr en starfsfólkið okkar hafði farið í gegnum tilskilin námskeið og við höfðum uppfyllt öll skilyrði. Scania býður jafnframt Scania Smart Dash, stafrænt vistkerfi í stýrishúsinu (e. in-cab ecosystem) sem vinnur með My Scania og Scania Driver-appinu. Hugbúnaðaruppfærslur geta farið fram í gegnum netið og háþróuð akstursaðstoðarkerfi (e. Advanced Driver Assistance Systems, ADAS) styðja við öryggi og akstur. Þjónustan þurfti að vera tilbúin áður en salan hófst Rafvæðing vörubíla snýst ekki aðeins um að flytja inn nýja bíla. Háspennukerfi kalla á sérþekkingu, sérstök verkfæri og breytt verklag á verkstæðum. Klettur þurfti því að undirbúa þjónustuna áður en Scania heimilaði fyrirtækinu að hefja sölu rafmagnsvörubílanna hér á landi. „Við fengum ekki vottun frá Scania fyrr en starfsfólkið okkar hafði farið í gegnum tilskilin námskeið og við höfðum uppfyllt öll skilyrði,“ segir Bjarni. „Starfsfólk verkstæðis okkar fór í umfangsmikla þjálfun í háspennuviðgerðum, við fjárfestum í sérverkfærum og þurftum meðal annars að tryggja að hægt væri að skerma af vinnusvæði þegar unnið er við háspennukerfin.“ Hann segir þetta mikilvægan hluta af heildarmyndinni. Viðskiptavinurinn þurfi að geta treyst því að þekkingin og þjónustan séu til staðar eftir að bíllinn er kominn í rekstur. Klettur afhendir jafnframt bílana fullbúna fyrir það verkefni sem þeir eiga að sinna. „Ef viðskiptavininn vantar t.d. bíl með vörukassa eða palli fær hann fullbúinn bíl frá okkur,“ segir Jóhannes. „Við sjáum um að útfærslan henti verkefninu og getum líka aðstoðað við ráðgjöf varðandi hleðsluinnviði og uppsetningu hleðslustöðva í gegnum dótturfélag Scania.“ Söluhæstir í 25 ár samfellt Scania stendur á sterkum grunni á íslenska vörubílamarkaðnum. Vörumerkið hefur verið söluhæst í þyngri flokki vörubíla, 16 tonn og þyngri, á Íslandi samfellt í 25 ár, eða frá árinu 2001. Á síðasta ári var markaðshlutdeildin um 50 prósent. „Þetta segir auðvitað mikið um bílana en líka um þjónustuna,“ segir Bjarni. „Við höfum lagt mikla áherslu á að standa vel að þjónustu við viðskiptavinina og það skiptir mjög miklu í þessum rekstri.“ Rafmagnið er þó ekki eina leiðin sem Klettur býður fyrirtækjum sem vilja draga úr umhverfisáhrifum. Scania býður einnig metanvörubíla og allir Scania-dísilbílar geta gengið fyrir 100% HVO-lífdísil, vetnismeðhöndlaðri jurtaolíu. Rafmagnsvörubílarnir bætast því í sífellt fjölbreyttari flóru lausna. „Það er engin ein lausn sem hentar öllum,“ segir Bjarni. „Við erum með rafmagn, metan og HVO og getum því skoðað hvert verkefni fyrir sig. Með nýju rafmagnsbílunum höfum við hins vegar fengið miklu fleiri möguleika en áður. Nú getum við sett saman bíl sem tekur mið af raunverulegri vinnu viðskiptavinarins í stað þess að reyna að láta viðskiptavininn laga sig að bílnum.“
Vistvænir bílar Bílar Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira