EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Brimborg og Ragnheiður Tryggvadóttir 8. október 2026 10:36 Volvo EX60 kom vel út í reynsluakstri í suðrænni sól. Hvernig reynist hann í hráslagalegum íslenskum veruleika? Vonarstjarna Volvo er mætt til landsins, EX60 en hans hefur verið beðið með óþreyju síðan í upphafi árs þegar hann var kynntur til sögunnar sem leikbreytir í lífi rafökumanna. Mörg okkar dreymir um að skipta yfir í rafbíl og nú er svo komið að það á ekki að vera neitt vesen að keyra á rafmagni, segir Volvo.
Til að rifja stuttlega upp er EX60 fimm manna rafjeppi, hugsaður sem rafknúinn arftaki söluhæsta bíls Volvo, XC60. Stóru loforðin snúast um drægni og stutt hleðslustopp: allt að 660 kílómetra drægni í P10 AWD og 810 kílómetra í P12 AWD samkvæmt uppgefnum WLTP-tölum. Við réttar aðstæður á tíu mínútna hraðhleðsla að bæta við allt að 320 kílómetrum. Bæng! Rafhlaðan er sambyggð botnplötunni, sem lækkar þyngdarpunkt bílsins og gefur meira rými fyrir fólk og farangur. Innanrýmið einkennist af skandinavískri hönnun og praktískum lausnum eins og Svíum einum er lagið, meðal annars hanskahólfi í miðjunni og aðgengilegum geymsluhólfum undir skottgólfinu. Tæknin er líka ríkuleg en Volvo brýtur ekki bara blað í rafbílasögunni með þessum bíl heldur líka í eigin sögu. Þetta er þeirra tæknivæddasti bíll, hannaður frá grunni sem rafbíll og með nýjum framleiðsluaðferðum eins og Mega Casting og þá aðlagar nýtt öryggisbelti viðbrögð sín að farþeganum og aðstæðum við árekstur. EX60 inniheldur ofurtölvukerfið HuginCore, Google Gemini-raddaðstoð og Pilot Assist, sem aðstoðar við hraða, fjarlægð og stýringu, undir eftirliti ökumanns þó. Allt á þetta að gera aksturinn einfaldari, þægilegri og öruggari. EX60 tók sig vel út uppi í sveit. Blinduð af Barcelona sól? Leiðir okkar hafa reynda áður legið saman þegar ég fékk að reynsluaka honum undir brennandi Barcelona sól í vor. Þá naut ég þess í botn að bruna um hlykkjótta vegi spænskra sveita, hraðbrautir og iðandi borgina við hitatölur sem aldrei sjást á íslenskum mælum. Ég kolféll fyrir bílnum. Þægindunum við aksturinn, hljóðvistinni, skandinavísku hönnuninni og örygginu. Svo var stærðin svo passleg en samt pláss fyrir allt. Sól, vínekrur og sléttur sjór gera reyndar allt betra, íslenskur veruleiki er annar. Sjaldan sól, oftar rigning, lægðir og leiðindi og veðurviðvaranir í öllum litum marga mánuði ársins. Og þegar ég lagði af stað í reynslurúnt á dögunum var einmitt rammíslenskt haustveður, rigning og rok. Ferðinni var heitið norður yfir heiðar og til baka, alls um 880 kílómetrar á malbiki og möl. Nú kæmi í ljós hvort þessi sumarást mín á EX60 héldi í köldum raunveruleikanum. Íslenskur veruleiki er talsvert annar en suðræn sól og blíða. Byrjum á drægninni og hér kemur smá talnasúpa. Ég reynsluók EX60 Ultra AWD með 660 km uppgefna drægni. Ég lagði af stað með 70% og áætlaða 280 kílómetra. Það skilaði mér á Blönduós með 18% eftir. Þar hlóð ég í hvelli upp í 80% rétt á meðan ég borðaði samloku og bíllinn áætlaði 350 km. 210 kílómetrum síðar uppi í afskekktri sveit stóð rafhlaðan í 30%. Heimahleðslan í sveitinni kom mér upp í 83% og áður en ég þurfti að rjúka af stað til baka og áætlaði 350 km drægni. Í Víðigerði hlóð ég yfir kaffibolla og lagði aftur af stað þegar 67% voru komin inn á og 270 km. Heimkomin í Kópavoginn, 195 km síðar átti ég 20% eftir. Þessi talnasúpa staðfestir ekki 660 kílómetra drægni við þessar aðstæður, ég hlóð bílinn aldrei 100%, en hún svarar praktískari spurningu: Var eitthvað vesen að fara þessa löngu leið á rafmagni? Nei. Ég var aldrei tæp á rafmagni og gat leyft mér stutt hleðslustopp. Eins var rigning stóran hluta ferðarinnar og malbikið blautt en blautir vegir virðast oft soga til sín prósenturnar á rafhlöðum rafbíla. Það fannst mér ekki gerast í þessari ferð. Allt eins gott að sameina matartímann og hleðslustoppið. Margfölduðust þægindin í suðrænni sól? Það er talsvert annað að ferðast langar vegalengdir í rigningu og súld en í suðrænni sól. Miðaldra bak finnur líka vel fyrir því að sitja lengi og hvað þá að keyra aftur mörghundruð kílómetra til baka strax daginn eftir. En þarna verð ég að gefa Volvo plús í kladdann. Þægindin sem ég upplifði í spænsku sólinni sönnuðu sig eiginlega betur í íslenskum veruleikanum. Ekta íslenskt haustveður, rigning og grár himinn. Það fór afar vel um mig í sætinu og aksturinn mjúkur og áreynslulaus, bæði á ósléttum þjóðvegi 1 og á malarvegi. Ég nýtti mér Pilot Assist óspart á þeim köflum þar sem aðstæður leyfðu. Aðstoðin við hraða, fjarlægð og stýringu létti mér aksturinn og bíllinn fylgdi beygjum og akreinamerkingum vel. Ég stalst til að sleppa stýrinu, sem Volvo ætlast samt ekki til þess að maður geri, enda fer bíllinn fram á að ég taki um stýrið eftir smá stund. En, stýrisaðstoðin virkar vel á íslenskum vegum og bíllinn beygði og fylgdi vegmerkingum. Mjúk hljóðvistin inni í bílnum gerði það líka að verkum að ég þreyttist síður við aksturinn og stílhrein hönnunin inni í bílnum hjálpaði til. Þegar ég hlustaði á tónlist sló Bowers & Wilkins hljóðkerfið ekki feilnótu. Það er hægt að stilla hljómgæðin í bílnum eftir „herbergjum“; heima í stofu, á klúbbi eða í tónleikasal. Mér fannst tónleikasalurinn magnaðastur. Ég spjallaði aðeins við bílinn gegnum Google Gemini, bað hann um að hækka fyrir mig hitann í sætinu og finna fyrir mig næsta ítalska veitingastað að gamni, mig langaði í pasta. Það gekk vel, nema hann vildi ekki svara mér á íslensku þegar ég bað um það en það gerði sýningarbíllinn úti á Spáni. Kannski stillingaratriði sem miðaldra ég fattaði ekki? Ég hafði efast um að ég myndi nýta mér raddstýringu yfirleitt, finnst þægilegra að smella á takka en það kom mér á óvart hvað það var þægilegt að nota hana og þurfa ekki að nota hendurnar. Farangur ferðarinnar hvarf í skottið, án þess að fella niður aftursætin. Ég hefði getað tekið miklu meira með mér. Eftir þessa haustferð norður yfir heiðar og til baka verð ég að segja að hrifningin var ekki bara spænsku sólinni að þakka. Þægindin, róin inni í bílnum og mjúkur aksturinn héldu sínu í rigningu og roki og hleðslustoppin féllu ágætlega að mínum eigin þörfum fyrir mat og kaffi. EX60 gerir langferðina auðvelda, ég þurfti ekki að hafa stöðugar áhyggjur af rafhlöðuprósentum eða læra á alla tæknina til að njóta hennar. Frost og snjór bíða síns prófs, en íslenska haustið slökkti allavega ekki neistann sem Barcelona-sólin kveikti í vor.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira