
Ósanngjörn landbúnaðarumræða
Í fyrsta lagi þetta. Fyrr í sumar birtust fréttir af því að stórverslunin Bónus vildi afnema svo kallaða skilaskyldu á íslenskum kjötvörum og jafnvel líka öðrum landbúnaðarafurðum. Þetta voru í sjálfu sér jákvæðar fréttir. Skilaskyldan hefur lengi verið þyrnir í augum íslenskra afurðastöðva og framleiðenda íslenskra matvara. Árið 2009 á 136. löggjafarþinginu flutti ég ásamt tíu öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins þingsályktunartillögu um málið sem var svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela efnahags- og viðskiptaráðherra að móta reglur um skilaskyldu á ferskum matvörum í verslunum, til þess að tryggja eðlilegt og sanngjarnt samkeppnisumhverfi innlendrar matvælaframleiðslu.“
Tillagan hlaut ekki afgreiðslu og höfum við flutt hana í tvígang síðan. Nú síðast var henni dreift á Alþingi 4. október sl. en hefur ekki verið afgreidd. Málið fékk þó almennt jákvæðar undirtektir, svo sem í umræðum á Alþingi. Var það meðal annars sent til umsagnar sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar, sem samþykkti einróma jákvætt álit þann 24. nóvember sl. Enn bólar ekki á afgreiðslu málsins, en þingið hefur þó möguleika á að ljúka því nú í september.
Hvað er skilaskylda?Í greinargerð með tillögunni er skilaskyldan útskýrð með þessum hætti: „Skilaskyldan felur í sér að kjósi verslunareigandi svo, getur hann sér að kostnaðarlausu krafist þess að framleiðandi taki til baka framleiðsluvörur sem eru að nálgast síðasta söludag. Þetta á við um íslenskar matvörur en ekki þær erlendu.“
Þannig er skilaskyldan klárleg mismunun gagnvart íslenskri framleiðslu, en á það þarf þó að líta að í skilaskyldu getur falist trygging fyrir því að ekki verði óeðlileg birgðasöfnun í verslun, með tilheyrandi kostnaði og rýrnun sem að lokum falli á neytendur í hærra vöruverði.
Þegar þetta er skoðað sjá allir hversu ósanngjarnt það er þess vegna að halda því fram, eins og gert hefur verið núna nýverið, að skilaskyldan sé til marks um sóun í íslenskum landbúnaði og að um sé að ræða nokkurs konar ríkisstyrk við að farga landbúnaðarafurðum sem komnar eru fram yfir söludag. Skilaskyldan er ekki það sem bændur eða afurðastöðvar hafa krafist. Öðru nær. Þeir aðilar hafa ályktað um að afnema hana.
Jákvæðar fréttir af vaxandi útflutningiHitt atriðið sem hér skal gert að umtalsefni er vaxandi útflutningur á landbúnaðarafurðum.
Í gegnum tíðina hafa menn af mikilli þrautseigju reynt að hasla íslenskri landbúnaðarframleiðslu völl á erlendum mörkuðum. Sú viðleitni hefur gengið upp og ofan, en nú um stundir sjáum við merki um að betur horfi. Þessi útflutningur veldur engum viðbótar útgjöldum fyrir ríkissjóð. Þvert á móti. Þessi útflutningur er til ábata fyrir samfélagið og ríkissjóð. Umsvifin aukast, tekjur bænda verða meiri, störf verða til hjá fólki sem ella væri án atvinnu. Þannig dregur fremur úr útgjöldum ríkisins og tekjurnar aukast með vaxandi útflutningsframleiðslu á landbúnaðarvörum.
Margt veldur um betri horfurÞað er margt sem leggst á eitt og veldur því að betur horfir nú um útflutning á ýmsum landbúnaðarafurðum en fyrr. Fyrst ber að nefna þrautseigju þeirra sem hafa unnið að þessum málum, með ærnum tilkostnaði, vöruþróun og markaðsvinnu. Sá kostnaður hefur að minnstu fallið á ríkissjóð, gagnstætt því sem látið hefur verið í veðri vaka. Þessi kostnaður lagðist ekki síst á bændur og afurðastöðvarnar. Núna erum við að sjá árangur erfiðisins. Þá eru aðstæður til útflutnings á dilkakjöti á alþjóðlegum mörkuðum betri en oft áður, af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna minna framboðs frá hefðbundnum útflytjendum frá Nýja-Sjálandi og víðar. Loks er það augljóst að lágt gengi krónunnar styður við þennan útflutning, eins og annan, nú um stundir.
Ábending Josephs Stiglitz NóbelsverðlaunahafaAllt hefði þetta því átt að vera fagnaðarefni. Það er því í meira lagi ósanngjarnt að gera þennan útflutning tortryggilegan og jafna honum á einhvern hátt við útflutning sem stundaður var á landbúnaðarafurðum með útflutningsbótum, eins og átti sér stað fram að síðasta áratug síðustu aldar.
Sé það hins vegar skoðun einhvers að stuðning við íslenska landbúnaðarframleiðslu eigi að minnka, er vitaskuld heiðarlegt að segja það hreint út, en ekki undir rós. Slíkt hefði ófyrirséð áhrif, sem mönnum ber þá að gera grein fyrir. Það er nefnilega rétt sem Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, Joseph Stiglitz, segir í bók sinni Fair trade for all; menn eru flestir tilbúnir til þess að gera tilkall til þess ávinnings sem þeir ætla af minni landbúnaðarstuðningi, en engir heimtingu á að bera kostnaðinn sem af þeirri stefnumótun hlýst.
Þversögn og ESB-umræðanOg svo er það eitt að lokum. Málefni landbúnaðarins er mjög á dagskrá í tengslum við aðildarumsókn okkar að ESB. Það vekur athygli að þeir sem ákafastir eru í baráttunni fyrir aðild, þreytast ekki á því að segja okkur að með inngöngunni í ESB opnist miklir möguleikar til margs konar opinbers stuðnings við landbúnaðinn, ekki síst við sauðfjárframleiðsluna. Þeir sem þannig tala og vilja uppvægir halda þá leið, geta að minnsta kosti ekki í hinu orðinu gert það tortryggilegt að við séum að ná meiri árangri við útflutning landbúnaðarvara, án tilkostnaðar af hálfu ríkissjóðs. Í því felst algjör þversögn, sem ekki gengur upp.
Skoðun

Leiðréttingar á staðhæfingum um mjólkurmarkaðinn og tollflokkun
Erna Bjarnadóttir skrifar

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Ragnheiður Gröndal,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir skrifar

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar