Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar 22. október 2026 10:33 Umræða um innflytjendamál hefur verið áberandi undanfarna daga eftir ummæli bæjarstjóra. Hann hefur síðan leiðrétt orð sín og rökstutt afstöðu sína með tölum. Mér finnst rétt að viðurkenna það og ég ber virðingu fyrir því. Við þurfum að geta endurskoðað orð okkar og útskýrt betur hvað við eigum við. Ólík sýn og ólíkar skoðanir eru ekki það sama og fordómar. Það er hægt að hafa áhyggjur af framkvæmd innflytjendamála, gagnrýna hana og vilja breytingar án þess að bera neitt á móti fólkinu sem hingað kemur. Sú umræða á rétt á sér. Ég vil taka þátt í henni með þá þekkingu og reynslu sem ég hef. Ég kom til Íslands sem innflytjandi eftir að hafa verið flóttabarn vegna stríðs átaka í heimalandi mínu. Ég hef leitt 70 manna teymi í þjónustu við fólk á flótta, kennt menningarlæsi og setið í sveitarstjórn. Ég hef líka háskólamenntun í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu sem nýtist mér við að greina stefnumótun, framkvæmd hennar og ábyrgð stjórnvalda. Ég þekki því málaflokkinn úr eigin lífi, námi og starfi. Það sem mér finnst vanta er að við stöldrum lengur við það sem tölurnar segja okkur. Og það sem þær geta ekki sagt. Danskar tölur sýna mun á afbrotatíðni eftir uppruna. Þann mun á að taka alvarlega. En þegar við höfum flokkað fólk eftir upprunalöndum og borið saman niðurstöðurnar höfum við ekki þar með útskýrt hvers vegna munurinn er til staðar. Afbrotavísitölurnar 214 og 326, sem hafa verið nefndar í umræðunni, eru aldursleiðréttar tölur fyrir karlkyns innflytjendur frá MENAPT-löndum og karlkyns afkomendur þeirra árið 2025. Þær eru ekki heildstætt mat á uppeldisaðstæðum eða aðlögun. Í sömu skýrslu er munur áfram til staðar þegar leiðrétt er fyrir aldri og félags- og efnahagslegri stöðu, þótt sá samanburður nái yfir fleiri brotaflokka. Það væri því rangt að segja að skýrslan sýndi að félagslegar aðstæður skýrðu muninn allan. En hún sannar heldur ekki að uppruninn sé orsökin. Þarna þurfum við að vanda okkur. Barn sem fæðist í Danmörku hefur ekki sjálfkrafa sömu tækifæri og önnur börn þar. Ekki frekar en öll börn á Íslandi. Við vitum að afkoma foreldra, húsnæðisöryggi, skólaganga og félagslegt umhverfi skipta máli. Við tölum um það þegar við ræðum fátækt barna og stöðu ungmenna. Þessir þættir verða ekkert síður mikilvægir þegar foreldrarnir eru fæddir í öðru landi. Í danskri rannsókn eftir Önnu Piil Damm og Christian Dustmann, sem birtist í American Economic Review árið 2014, var fylgst með börnum flóttafólks sem hafði verið úthlutað búsetu með nær tilviljanakenndum hætti. Niðurstöðurnar sýndu að hærra hlutfall ungmenna með afbrotadóma í nærumhverfinu jók líkur á síðari afbrotadómum meðal drengjanna. Rannsóknin sýndi þannig að félagslegt umhverfi hafði áhrif á þróunina. Þess vegna spyr ég: Hvernig voru aðstæðurnar þar sem börnin ólust upp? Hvernig gekk þeim í skóla? Komust foreldrarnir í vinnu? Hvaða stuðningur var í boði og náði hann til þeirra? Þegar fátækt, atvinnuleysi og félagsleg einangrun safnast saman í ákveðnum hverfum þarf að skoða hvernig sú staða varð til. Það dugar ekki að kalla hverfin gettó og ræða síðan íbúana eins og aðstæðurnar í kringum þá komi málinu lítið við. Húsnæðisstefna, skólar og aðgengi að vinnu verða að vera hluti af þeirri umræðu. Gögnin sýna líka hversu ólíkar niðurstöður geta verið innan sama upprunahóps. Árið 2023 var hlutfall starfandi karla 84% í afmörkuðum hópi nýlegra innflytjenda frá MENAPT-löndum á grundvelli atvinnudvalarleyfa, samanborið við 81% meðal karla af dönskum uppruna. Afbrotavísitala karla í atvinnuleyfishópnum var 63, samanborið við 91 hjá körlum af dönskum uppruna. Þetta er sérstaklega afmarkaður hópur og niðurstöðurnar má ekki yfirfæra á alla. En þær sýna hvers vegna upprunaflokkun ein og sér segir okkur ekki nóg. Fólk kemur heldur ekki hingað á sömu forsendum. Sá sem kemur með ráðningarsamning í höndunum stendur öðruvísi að vígi en sá sem hefur flúið stríð, misst heimili sitt og þarf að byrja upp á nýtt. Það þýðir ekki að við eigum engar kröfur að gera. Það þýðir að við þurfum að skilja upphafsstöðuna ef við ætlum að meta árangurinn. Í störfum mínum hef ég þurft að hugsa um framkvæmdina. Hvað þarf að vera til staðar? Hver ber ábyrgð? Hvernig vinnum við saman og hvað gerum við þegar úrræðin duga ekki? Ég veit að sveitarfélög hafa ekki ótakmarkað fjármagn og að starfsfólk þjónustunnar getur ekki leyst allt með góðum vilja. Það þarf að ræða af hreinskilni. En þá vil ég líka að við tölum af sömu alvöru um aðgengi að íslenskunámi, húsnæði, atvinnu og stuðningi við börn. Við getum ekki metið aðlögun án þess að meta aðstæðurnar sem fólk á að aðlagast. Einstaklingar bera ábyrgð á eigin gjörðum. Sá sem brýtur af sér á að svara fyrir það. Stjórnvöld bera líka ábyrgð á ákvörðunum sínum og framkvæmd þeirrar stefnu sem þau móta. Hvort tveggja þarf að komast að í umræðunni. Ég vil geta bent á það sem vantar í túlkun talna án þess að það sé talið tilraun til að þagga niður í öðrum. Ég vil líka geta gagnrýnt framkvæmdina án þess að heilir hópar séu gerðir ábyrgir fyrir því sem fer úrskeiðis. Fyrir mér er þetta bæði faglegt viðfangsefni og persónulegt. Ég veit hvernig það er að koma hingað og þurfa að byggja líf sitt upp frá grunni. Ég veit líka hversu miklu skiptir hvað tekur við. Ef við ætlum að læra af reynslu annarra landa þurfum við að skoða meira en hvaðan fólkið kom. Við þurfum líka að skoða hvað beið þess þegar það kom þangað. Höfundur er stjórnmálafræðingur, innflytjandi og fyrrum flóttabarn, með víðtæka sérþekkingu og starfsreynslu í málefnum innflytjenda og flóttafólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jasmina Vajzović Crnac Innflytjendamál Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar