Byssa eða bíll? Ólafur þ. Stephensen skrifar 2. desember 2011 06:00 Skotárás vegna uppgjörs í undirheimum Reykjavíkur hefur réttilega vakið mikla athygli og ekki síður gríðarlegt vopnabúr, sem lögreglan fann hjá meðlimum glæpaklíku sem talin er viðriðin árásina. Klíkubræður hafa verið settir í gæzluvarðhald vegna rannsóknar málsins. Enginn dó reyndar eða slasaðist í árásinni; byssumaðurinn hitti ekki. Flestir vona samt sjálfsagt að skotmaðurinn fái þungan dóm fyrir tilraun til manndráps. Í fyrrakvöld hafði annar maður uppi tilburði til að drepa fólk. Sá var bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna og ók úr Borgarnesi og í átt til höfuðborgarinnar á allt að 150 kílómetra hraða áður en lögreglan náði að stöðva hann í Hvalfjarðargöngunum með því að sprengja eitt dekkið á bílnum. Enginn dó eða slasaðist, en það er ekki ökumanninum að þakka. Reynslan segir okkur að bæði réttargæzlukerfið og almenningsálitið muni líkast til taka með ólíkum hætti á brjálæðingnum með byssuna og brjálæðingnum á bílnum. Samt er ekki auðvelt að færa rök fyrir því að byssumaðurinn sé meiri ógn við líf og heilsu almennings en ökumaðurinn. Ef eitthvað er, sýna atvinnuglæpamenn oft þá tillitssemi að reyna frekar að drepa aðra glæpamenn en saklausa borgara. Hver sem er getur hins vegar týnt lífinu eða örkumlazt fyrir lífstíð af því að hann lendir fyrir tilviljun í vegi útúrdópaðs ökuníðings. Það er eitthvað einkennilegt við mismunandi viðbrögð við manndrápstilburðum með hnefum eða vopnum og með ökutækjum. Sá sem gengur um miðbæinn, sveiflar öxi eða hafnaboltakylfu í kringum sig og hótar að drepa fólk er tekinn úr umferð; settur í varðhald eða vistaður á viðeigandi stofnun. Hins vegar lesum við býsna oft fréttir um að einn og sami maður hafi verið tekinn ofurölvi undir stýri í tvígang sömu helgina, jafnvel sama kvöldið. Sá er oft með í höndunum eins til tveggja tonna morðvopn sem getur náð 200 kílómetra hraða. Jafnvel þegar menn verða valdir að dauða fólks og örkumlum, ölvaðir eða dópaðir undir stýri er algengur dómur ökuleyfissvipting í fáein ár og skilorðsbundið fangelsi í nokkrar vikur eða mánuði. Menn sem eru alvarleg ógn við öryggi samborgaranna eru ekki teknir úr umferð. Reyndar er vert að nefna að ekki eru allir ökuníðingar fullir eða undir áhrifum fíkniefna. Heilinn í þeim virkar samt eins og þeir hafi tekið eitthvað inn. Ekki sízt hjá einhverjum hópi ungra karlmanna er ofsaakstur nánast viðurkennd hegðun og þykir einhvers konar manndómsvígsla að vera tekinn af löggunni fyrir að stefna lífi og limum náungans í hættu. Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir lögreglumönnum að akstur undir áhrifum fíkniefna færist í vöxt og sé að verða algengari en ölvunarakstur. Raunar er lítill munur á þessu tvennu, en þróunin er áhyggjuefni, rétt eins og vaxandi ofbeldi í undirheimunum. Löggjafinn og dómstólar ættu að bregðast við henni með því að sjá til þess að brjálæðingarnir á bílunum fái þunga dóma, ekki síður en brjálæðingarnir með byssurnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Ólafur Stephensen Skoðanir Mest lesið Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Skoðun Öryggi í skipulagi – nauðsynleg uppfærsla Böðvar Tómasson Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Hættum að tala um sameiningu! Liv Aase Skarstad Skoðun Ofbeldislýður í sauðagæru Huginn Þór Grétarsson Skoðun Borgarlínublekkingar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Við erum að sýna börnunum okkar virðingarleysi – og þau finna það Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun
Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun
Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir Skoðun
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun
Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir Skoðun
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun