Skytturnar að norðan snúa aftur eftir sjö ára hlé 7. desember 2011 16:00 Sveitin var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum en fyrsta plata sveitarinnar Illgresið sló eftirminnilega í gegn 2003.
Rapphljómsveitin Skytturnar snýr aftur á föstudag eftir að hafa legið sjö ár í hýði. Nýtt efni verður á dagskrá sem varð til í vikulangri sumarbústaðaferð. „Það er eins gott að fólk mæti. Annars gerum við þetta aldrei aftur," segir Hlynur Ingólfsson rappari og hlær, en hann og Heimir Bjéjoð úr norðlensku rappsveitinni Skyttunum ætla að binda enda á sjö ára fjarveru hljómsveitarinnar frá tónleikastöðum Reykjavíkur næstkomandi föstudag. Þá munu þeir stíga á svið á Freyðibaðskvöldi Priksins ásamt Emmsjé Gauta og gefa aðdáendum sínum langþráð tækifæri til að berja þá augum. Skytturnar gáfu út breiðskífuna Illgresið árið 2003. Sú fékk frábæra dóma og sama ár voru Akureyringarnir valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hljómsveitarmeðlimir héldu stuttu síðar hver í sína áttina og því hefur lítið farið fyrir þeim á síðustu árum, fyrir utan stöku tónleika á Akureyri. Hlynur staðfestir þó að á Prikinu megi tónleikagestir eiga von á að heyra nýtt efni frá sveitinni. „Við eyddum heilli viku í sumarbústað síðasta sumar og tókum upp nýtt efni þar. Við tökum örugglega eitthvað af því á tónleikunum." Prikið er ekki stærsti tónleikastaður Reykjavíkur en Hlynur hefur ekki áhyggjur af plássleysi.Það var Emmsjé Gauti sem sannfærði Skytturnar um að koma fram, en Hlynur segir Gauta hafa verið svo ákveðinn og erfiðan að þeir hafi ekki getað sagt nei.„Prikið er fullkomið fyrir þetta kvöld, það er svo langt síðan við höfum spilað að maður veit ekkert hverjir mæta. Ef það koma fáir verður það ekki vandræðalegt fyrir okkur af því að það þarf bara nokkrar hræður til að það sé fullt þarna. Ef það mæta margir myndast bara góður sviti." Það virðist þó engin hætta vera á því að fámennt verði á Prikinu, því netheimar hafa logað af umræðum um endurkomuna síðan af henni fréttist. „Það er að myndast mikil spenna. Þetta verður klikkað, því skal ég lofa." - bb
Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira