Tónlist

Al­sæla á Akra­nesi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið stuð á Heima-Skaga á Akranesi um helgina.
Það var mikið stuð á Heima-Skaga á Akranesi um helgina. Daníel/Blik Studio 

Gleðin var alltumlykjandi á Akranesi um síðustu helgi þegar tónlistarhátíðin Heima-Skagi tók yfir bæinn. Sautján tónlistaratriði stigu á stokk víða um Akranes og hátt í 90 manns spiluðu og sungu.

Er þetta í sjötta sinn sem tónlistarhátíðin fer fram og í fréttatilkynningu segir:

„Það er skemmst frá því að segja að þetta heppnaðist afskaplega vel. Spilað var í ellefu húsum, heimahúsum, verslunum og fyrirtækjum í bænum. Þetta var sex tíma dagskrá og fullt af glöðum gestum sem nutu tónlistar í miðbænum og á Niðurskaganum á Akranesi. Meira að segja veðrið var að mestu gott.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá tónlistarfjörinu:

Fjörugt fólk á öllum aldri.Daníel/Blik Studio 
Geggjaðir gæjar!Daníel/Blik Studio 
Hljómsveitir tróðu meira að segja upp í verslunum.Daníel/Blik Studio 
Fjör í heimahúsi.Daníel/Blik Studio 
Huggulegt!Daníel/Blik Studio 
Klara Einars kom fram með hljómsveit.Daníel/Blik Studio 
Eyþór Ingi alltaf svalur.Daníel/Blik Studio 
Tónlistin veitir gleði.Daníel/Blik Studio 
Ýmsir skemmtilegir staðir voru nýttir til tónleikahalds.Daníel/Blik Studio 
Margt var um manninn!Daníel/Blik Studio 
Teitur Magnússon og hljómsveit.Daníel/Blik Studio 
Kíkt inn um gluggann.Daníel/Blik Studio 
Fólk varð ekki svangt!Daníel/Blik Studio 
Fólk gat komið sér vel fyrir.Daníel/Blik Studio 
Hrekkjavökustemningin var í loftinu enda 31. október.Daníel/Blik Studio 
Gestir fylgjast einbeittir með.Daníel/Blik Studio 
Skór og tónlist!Daníel/Blik Studio 
Gestir þurftu að fara úr skónum á heimilum fólks!Daníel/Blik Studio 
Teitur inni á listagalleríi.Daníel/Blik Studio 
Heima-Skagi sló í gegn í ár.Daníel/Blik Studio 
Eyþór Ingi heillaði tónleikagesti.Daníel/Blik Studio 
Dóra og döðlurnar klæddu sig upp sem Grýlurnar.Daníel/Blik Studio 
Rapparinn og tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel tróð upp.Daníel/Blik Studio 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.