Það eru ekki bara karlarnir sem græða á tá og fingri í poppinu heldur hafa konurnar malað gull á árinu sem er að líða. Vefútgáfa bandaríska fjármálatímaritsins Forbes tók saman þær tíu konur sem hafa grætt hvað mest árið 2011.
Í grein Forbes um launahæstu konurnar í poppbransanum kemur fram að tímaritið studdist við upplýsingar frá Pollstar, sem safnar upplýsingum um tónleikaferðir poppstjarnanna í Bandaríkjunum og RIAA sem eru samtök plötuútgefenda í Ameríku. Þá ræddi tímaritið einnig við umboðsmenn, lögfræðinga og tónleikahaldara til að fá sem besta mynd af stöðunni.
Blaðamaður Forbes bendir hins vegar á að aðeins fimm af tíu launahæstu konunum voru á topp 25 lista blaðsins yfir launahæstu poppstjörnur í heimi og aðeins ein hljómsveit á þeim lista hafði söngkonu innan sinna vébanda, Black Eyed Peas. „Konur virðast eiga erfiðara með að nýta sér frægð sína og velgengni til að afla sér fjár,“ hefur Forbes eftir Lori Landew, lögfræðingi sem hefur sérhæft sig í skemmtanabransanum. Landew bætir því við að hún eigi erfitt með að festa reiður á hver sé ástæðan. Hún efast þó um að það vanti frumkvöðlahugsunina sem einkennir karla í þessum bransa.
„Eflaust snýst þetta um skort á sömu tækifærum.“
freyrgigja@frettabladid.is

