Viðskipti erlent

Kröfuhafar vilja raunhæfa áætlun Grikkja

Gríkkland hefur verið í djúpstæðum efnahagsvanda í langan tíma.
Gríkkland hefur verið í djúpstæðum efnahagsvanda í langan tíma.
Stjórnvöld í Grikklandi freista þess enn að ná samkomulagi við kröfuhafa sína, en skuldir ríkisins eru almennt álitnar það íþyngjandi fyrir rekstur ríksins, að óhjákvæmilegt sé að afskrifa stóran hluta skuldanna. Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC.

Á undanförnum vikum hafa viðræðurnar gengið upp að ofan, að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins í morgun. Stjórnvöld í Grikklandi eru sökuð um að vera ekki raunhæf í áætlunum sínum, þegar kemur að endurskipulagningu ríkisfjármála.

Ríkisfjármálaáætlun sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa unnið að með stjórnvöldum í Grikklandi, er ekki talin hafa skilað nægilega miklum árangri til þessa. Einkum er það sala á eignum sem gengið hefur erfiðlega, en hún átti að skila liðlega 65 milljörðum evra í kassa ríkisins. Það hefur ekki gengið eftir.

Hinn 20. mars nk. falla skuldir upp á 14,4 milljarða evra á gjalddaga. Nær útilokað þykir að Grikkland geti endurfjármagnað skuldir sínar á nægilega góðum vöxtum, nema að Seðlabanki Evrópu komi landinu til bjargar. Fjármálastofnanir sem eiga kröfur á landið vilja að stjórnvöld í Grikklandi geri nýja áætlun, þar sem gengið er útfrá því að að stór hluti skulda ríkisins sé afskrifaður. Annað sé óraunhæft og auki á óvissuna á evrusvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×