Gullæði runnið á hóteleigendur í Úkraníu 24. janúar 2012 07:48
Gullæði er runnið á eigendur hótela og gistihúsa í borgunum Kharkiv og Lviv í Úkraníu þar sem Evrópumeistaramótið í fótbolta fer fram í sumar. Dæmi eru um 4.700% hækkun á gistinóttum. Fjallað er um málið í blaðinu Politiken. Þar segir er tekið dæmi af íbúðahótelinu Downtown Apartments í Kharkiv en þar kostar ódýrasta nóttin í júní meðan að mótið stendur yfir 12.300 danskar krónur eða um 260.000 krónur. Þessi íbúð fæst hinsvegar í maímánuði á tæpar 300 krónur danskar krónur eða rúmlega 6.000 krónur. Hækkunin milli mánaða er yfir 4.700%. Sömu geðveiku verðin á gistingu í þessum borgum er að finna víðar. Þannig ætlaði hópur af stuðningsmönnum danska landsliðsins að reyna að útvega sér ódýra gistingu á farfuglaheimili meðan á mótinu stóð. Ódýrasta verðið á svefnpokaplássi reyndist vera 15.000 danskar krónur fyrir nóttina eða yfir 300.000 krónur. Þetta hefur leitt til þess að danska knattspyrnusambandið hefur aðeins selt 1.000 aðgöngumiða á leiki danska liðsins af þeim 10.000 miðum sem sambandið hefur yfir að ráða.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Katrín Ósk og Olgeir til Aha Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira