Nokkrar vikur í iPad 3 14. febrúar 2012 14:16 iPad spjaldtölvan er vinsælasta spjaldtölva heims.
Gert er ráð fyrir að tölvurisinn Apple kynni nýja kynslóð af iPad-spjaldtölvunni í byrjun næsta mánaðar. Talið er að upplausnin á skjánum á iPad 3 verði 2048 x 1536 og að örgjörvinn verði töluvert harðvirkari. Fullyrt er að Apple hafi boðað til blaðamannafundar í næsta mánuði. En fyrirtækið gefur aldrei upp hvaða vara er kynnt á fundinum. En tölvuspekingar telja fullvíst að það verði iPad 3 sem verður kynntur til sögunnar. Upphaflega var talið að iPad 3 kæmi út í mars eða júní á þessu ári en nú er ljóst að Apple mun flýta útgáfunni. Samkvæmt Richard Gardner, greinanda hjá Citigroup, er ástæðan fyrir þessu sú að Apple vill skáka öðrum spjaldtölvuframleiðendum. Með því að flýta framleiðslu og útgáfu iPad 3 mun Apple geta lækkað verðmiðann á iPad 2 og vonandi lokkað hugsanlega kaupendur frá öðrum ódýrum spjaldtölvum. Talsvert hefur dregið úr vinsældum iPad 2 eftir að vefverslunarrisinn Amazon gaf út spjaldtölvu sína, Kindle Fire, en hún er mun ódýrari en spjaldtölva Apple. Annar tölvurisi, Samsung, kynnti spjaldtölvu sína, Galaxy Tap 2, í gær en talið er að sú spjaldtölva sé líklegust til að veita Apple samkeppni á þessum markaði.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Katrín Ósk og Olgeir til Aha Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira