Uppselt á Bryan Ferry - Aukatónleikum bætt við 22. mars 2012 15:33 Bryan Ferry trekkir að í Hörpuna.
Miðsalan á tónleika Bryan Ferry í Hörpu, á hvítasunnudag 27. maí, hófst á hádegi í dag og er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið framúrskarandi. Uppselt er á tónleikana og því hefur öðrum tónleikum verið bætt við. Í tilkynningu frá tónleikahöldurum segir að strax eftir að tónleikarnir voru staðfestir fundu þeir fyrir gríðarlegum áhuga. Því var strax athugaður sá möguleiki að halda aukatónleika. Bryan Ferry og starfslið hans sýndu þessu strax mikinn áhuga, enda er hópurinn gríðarlega spenntur fyrir komu sinni hingað. Tekið er fram að ekki sé hægt að bæta við fleiri tónleikum. Seinni tónleikarnir fara fram degi seinna, eða mánudaginn 28. maí, sem er annar í hvítasunnu. Miðasala á þá hefst klukkan 11 á morgun, föstudag. Tónleikarnir fara einnig fram í Eldborgarsal Hörpu og aðeins eru 1.500 aðgöngumiðar í boði. Miðasala fer fram á harpa.is, midi.is, í miðasölu Hörpu og í síma 5285050.
Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira