Handbolti

Kiel flaug áfram í undanúrslitin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Pálmarsson í leik með Kiel
Aron Pálmarsson í leik með Kiel Mynd. / Getty Images
Kiel var síðasta liðið sem tryggði sætið sitt í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag þegar liðið bar sigur úr býtum, 33-27, gegn Croatia Zabreb á heimavelli.

Fyrri leikur liðana fór fram í Króatíu og skildu liðin þá jöfn og því nægði sigur fyrir bæði lið. Jafnræði var á með liðunum til að byrja með en þegar líða tók á síðari hálfleikinn náði Kiel tökum á leiknum og innbyrtu frábæran sigur.

Aron Pálmarsson var í stóru hlutverki hjá Kiel í dag og lék virkilega vel en hann skoraði þrjú mörk í leiknum.

Draumatímabilið hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar heldur því áfram en ekkert virðist geta stoppað þetta ótrúlega handboltalið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×