Jóhanna: Allir fegnir því að málinu sé lokið 23. apríl 2012 17:07
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist telja, aðspurð um viðbrögð sín við dómi Landsdóms frá því í dag, að allir séu fegnir því að málinu sé lokið enda hafi það reynst öllum erfitt. „Þessi niðurstaða kom mér á óvart. Ég var í hópi þeirra sem taldi ekki ástæðu til að ákæra Geir H. Haarde." Hún bendir á að Geir hafi verið sýknaður í þremur ákæruliðum af fjórum. Hann sé sakfelldur fyrir atriði sem snúi að stjórnsýslunni í heild sinni. „Það er reyndar það sama og kom fram hjá rannsóknarnefnd þingsins. Þar fékk stjórnsýslan mikinn áfellisdóm og við erum búin að vera að vinna að því að taka á þeim málum." Hún bendir á ný lög um stjórnarráðið til dæmis í því sambandi. „Við höfum tekið á þessum málum þannig að þetta á ekki að koma fyrir aftur." „Ég hef löngum talað gegn Landsdómi og talað fyrir því að endurskoða þau lög og lög um ráðherraábyrgð," segir Jóhanna og bætir við að nú þurfi menn að einhenda sér í það að endurskoða þessi lög. „Ég held að það sé fullt tilefni til þess."
Landsdómur Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Sjá meira