Formúla 1

Verður mótinu í Barein á endanum aflýst?

Birgir Þór Harðarson skrifar
"Manneskjur án mannréttinda" stóð á borðum sem mótmælendur báru sín á milli.
"Manneskjur án mannréttinda" stóð á borðum sem mótmælendur báru sín á milli. nordicphotos/afp
Formúlu 1 kappaksturinn í Barein fer fram samkvæmt áætlun á sunnudaginn, fullyrðir Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa krónprinsinn í konungsríkinu Barein. Miklar umræður um hvort kappaksturinn eigi yfir höfuð að fara fram í löndum á barmi borgarastríðs hefur staðið í nokkrar vikur.

Formúla 1 keppir í Barein í fyrsta sinn síðan 2010 á sunnudaginn. Mótinu var aflýst í fyrra vegna gríðarlegara mótmæla og óeirða þar í landi gegn sitjandi valdhöfum. Umræðan undanfarnar vikur hefur snúist um það hvort hægt sé að fara til Barein í ár og fólk hefur myndað sér skoðun á því með því að reyna að meta ástandið þar í samanburði við það sem var í fyrra.

Mótmæli hafa staðið yfir í landinu síðan í janúar 2011. Almennt er talið að mótmælin í Barein séu afsprengi arabíska vorsins, hrynu mótmæla í Mið-Austurlöndum í fyrra. Löndin við Persaflóa hafa komið betur undan arabíska vorinu heldur en nágrannaþjóðir þeirra við Miðjarðarhafið. Það er þó ekki til marks um viðleitni stjórnvalda til umbóta.

Krónprinsinn lét hafa eftir sér í dag að ef hætt verður við mótið nú, með öryggissjónarmið ferðamanna og starfsmanna liðsins í huga, þá sigri stjórnarandstaðan og mótmælendurnir. Al Khalifa sagði einnig að kappaksturinn væri mikilvægur fyrir stjórnvöld. "Ég held að formúlan sé tól fyrir okkur því kappaksturinn kemur á samskiptum milli samfélaganna í landinu og fólk þarf að vinna saman."

Víða umdeild niðurstaðaFormúla 1 hefur, með Bernie Ecclestone og FIA (alþjóða akstursíþróttasambandið) í fararbroddi, tekið afstöðu með stjórnvöldum í Barein í miðri byltingu. Ekki eru allir sáttir við það og segja að ákvörðunin hafi verið tekin með rekstrarleg sjónarmið formúlunnar í huga frekar en mannréttindi borgaranna í Barein.

Ákvörðun yfirmanna kappakstursins um að keppa í Barein er nógu umdeild til að snerta utanríkisstefnu Breta. Þingmenn í Lundúnum, þar á meðal Ed Milliband leiðtogi Verkamannaflokksins og forystumaður stjórnarandstöðunnar, hafa lýst yfir að þeir vilji að mótið fari ekki fram. Enn fremur hefur Milliband biðlað til forsætisráherra landsins, David Cameron, um að blanda sér í málin.

Fleiri þingmenn og embættismenn hafa meira að segja sagt að þeim finnist Bretar eigi ekki að vera í Barein á ófriðartímum þar. Breska ríkisstjórnin ætlar þó ekki að skipta sér af að svo stöddu. "Það er ekki undir okkur komið hvaða íþróttaviðburðir fara fram í öðrum löndum," sagði talskona forsætisráðuneytisins.

Í stöðugri þróunForce India-liðið tók ekki þátt í seinni æfingum keppnisliðanna í Barein í dag. Sögðust yfirmenn liðsins hafa tekið þá ákvörðun vegna þess að sumum liðsmönnum þykir mjög óþægilegt að ferðast frá brautinni og upp á hótel eftir myrkur.

Í gær sáu tveir liðsmenn sig knúna til að flýja landið eftir að hafa lent í umferðarteppu á leið upp á hótel eftir myrkur. Mótmælendur gerðu að þeim aðsúg og köstuðu eldsprengjum í bíl liðsins.

Bernie Ecclestone segist ekki hafa neinar áhyggjur af öryggismálum í landinu fyrir kappaksturinn. "Ég get ekki hætt við þennan kappakstur," sagði hann. "Óeirðirnar hafa ekkert með okkur [Formúlu 1] að gera. Við erum hér til að keppa og virða okkar samning. Það eru heimamenn sem verða að taka ákvörðun um afdrif mótsins."

Óeirðalögreglan í landinu beitir á meðan öllum ráðum til að halda mótmælum og óeirðum niðri í aðdraganda mótsins.


Tengdar fréttir

Kappakstur í skugga mótmæla og óeirða

Barein kappaksturinn fer fram um helgina eftir að talsverð óvissa hefur ríkt um hvort mótið verði eða ekki. Tvö ár eru liðin síðan keppt var í Barein síðast því kappakstrinum var aflýst í fyrra vegna gríðarlegra mótmæla í þar í landi.

Rosberg fljótastur og Force India dregur sig í hlé

Nico Rosberg, á Mercedes-bíl, var fljótastur á seinni æfingu keppisliða í Formúlu 1 sem nú fer fram í Barein. Lewis Hamilton á McLaren-bíl var fljótastur á fyrri æfingunni.

Gríðarlegir fjármunir í húfi verði mótinu í Barein aflýst

Umræðan um hvort Formúla 1 eigi að fara til Barein og keppa þar 22. apríl hefur magnast í aðdraganda kínverska kappakstursins um næstu helgi. Gríðarlegir fjármunir eru fólgnir í kappakstrinum bæði fyrir hagkerfið í Barein og fyrir auglýsendur og keppnislið í Formúlunni.

Mótmælendur mættu Formúlu-liðum er þau mættu til Barein

Þegar Formúlu 1-liðin lentu í Manama, höfuðborg Barein, í gærkvöldi mættu þeim hundruðir mótmælenda. Uppreisnarmenn eru mjög óánægðir með að Formúla 1 skuli halda mót í Barein í umboði stjórnvalda þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×