Formúla 1

Stytta keppnir í For­múlu 1

Andri Broddason skrifar
Max Verstappen hefur mikið kvartað yfir vél núverandi bíla í Formúlu 1.
Max Verstappen hefur mikið kvartað yfir vél núverandi bíla í Formúlu 1. Mark Sutton/Getty Images

Alþjóðaakstursíþróttasambandið, FIA, hefur staðfest tillögu um að keppnir í Formúlu 1 verði styttar á næsta ári. Þetta er gert vegna skipulagðra breytinga á vélum í Formúlu 1 á næsta ári.

Keppnir í Formúlu 1 eiga að vera 305 kílómetrar og eru því mismargir hringir keyrðir á hverri braut. Keyrðir eru hringir sem nema næst 305 kílómetrum sem þýðir að allar keppnir eru ekki alveg jafn langar. Kappakstursbrautin í Mónakó er þó undantekning frá þessari reglu þar sem keppnin þar er aðeins 260 kílómetrar. Þrátt fyrir það er keppnin í Mónakó sú lengsta á tímabilinu.

Á næsta ári verða keppnirnar 290 kílómetrar og mun það stytta allar keppnir að meðaltali um tvo til þrjá hringi. Ökumenn í Formúlu 1 hafa kvartað yfir vélum í bílunum í ár þar sem rafmagnsmótorinn í bílunum er notaður meira. Bíllinn fær ekki alltaf að hlaða batteríið nógu mikið og verður bíllinn því oft batteríslaus á miðjum hring og verður því kraftlítill.

Til að reyna að laga þennan „galla“ á bílunum er áætlun að auka flæði á bensíni í mótor bílsins á næsta ári. Við það nota bílarnir meira bensín og því þarf að stytta keppnirnar svo að bílarnir verði ekki bensínlausir.

Einnig er verið að breyta reglum um lengd á keppnum þar sem reglur í reglum Formúlu 1 segja að kappakstur geti aldrei verið búinn seinna en þrem tímum eftir þegar hann átti að byrja. Oft þarf að stöðva keppnir vegna veðurs eða árekstra og geta þá keppnir ekki farið fulla lengd.

Með nýjum reglum er meira svigrúm fyrir keppnir til að klárast þrátt fyrir að það þurfi að stöðva þær vegna óviðráðanlegra aðstæðna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×