Handbolti

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Ólafur Stefánsson leikur með AG.
Ólafur Stefánsson leikur með AG.
Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrslitum dönsku deildarinnar.

Kolding lét AG heldur betur hafa fyrir hlutunum og var meðal annars með tveggja marka forskot, 21-19, þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum.

AG kom þá til baka og hélt yfirhöndinni í leiknum en aftur náði Kolding að jafna, 26-26, og það reyndust lokatölur leiksins.

AG stendur þvi nokkuð vel að vígi í einvíginu en þeir eiga heimaleik sinn eftir en hann fer fram næsta laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×