Handbolti

Aron: Þakklátur fyrir að vera hluti af þessu liði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Aron Pálmarsson varð í dag Evrópumeistari með Kiel eftir sigur á Atletico Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Hann sagði í viðtali við Vísi í gær að það hafi verið ólýsanleg tilfinning að fá að lyfta styttunni eftirsóttu.

„Tilfinningin var eiginlega betri en fyrir tveimur árum síðan. Nú er ég í aðeins stærra hlutverki," sagði Aron en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Mér fannst eins og við værum með þá í 40-45 mínútur í leiknum og bara tímaspursmál hvenær við okkur tækist að setja í annnan gír í seinni hálfleik og skríða aðeins fram úr þeim."

Aron segir það ólýsanlega tilfinningu að spila og æfa með bestu handboltamönnum heims. „Ég er mjög þakklátur fyrir það að fá að vera hluti af þessu, sérstaklega þar sem okkur hefur tekist að láta árangurinn fylgja með. Fólk er að tala um besta lið allra tíma og þó svo að ég ætli ekki að segja það beint út tel ég að við höfum sannað ansi mikið um þessa helgi."

„Við erum með fjórtán heimsklassaleikmenn og það getur hver og einn skorað tíu mörk og unnið leiki upp á sitt einsdæmi. Við bara spilum okkar kerfi sem eru ansi mörg. Við eru með óbreyttan hóp frá því í fyrra og margir hafa spilað saman lengi og þekkjast því mjög vel."

Aron segir að leikmenn liðsins hafi verið staðráðnir í að komast aftur í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa misst af henni í fyrra. „Við vildum sýna að við eigum heima hér og við gerðum það svo sannarlega," sagði Aron.

Hann lofaði einnig þjálfarann Alfreð Gíslason sem var að vinna Meistaradeildina í þriðja sinn. „Tölfræðin talar sínu máli og erfitt að bæta einhverju við það. Hann er með frábæran hóp og allt það en það hefur margsýnt sig í öllum íþróttum að það skiptir ekki alltaf öllu máli. Hann hefur náð að stilla hópnum saman vel í ár og látið okkur vera mjög einbeitta í hverjum leik. Það sést best á því að við erum tveimur leikjum frá því að eiga fullkomið tímabil í þýsku úrvalsdeildinni og er það met sem ekki er hægt að bæta. Yrði það ein stærsta viðurkenning sem þjálfari getur fengið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×