Handbolti

Alexander: Vonandi fáum við AG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Alexander Petersson var vitanlega svekktur með niðurstöðuna eftir leik sinna manna í Füchse Berlin gegn Kiel í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag.

Füchse Berlin tapaði með minnsta mun, 25-24, þrátt fyrir hetjulega baráttu í seinni hálfleiknum þar sem jafnt var á öllum tölum síðustu mínúturnar.

„Það munaði bara svo litlu. Það sáu allir. En það var mjög skemmtilegt að spila hérna í þessari frábæru höll," sagði Alexander.

„Við byrjuðum illa í leiknum. Kiel var miklu betri en við náðum að koma til baka. Við eigum núna erfiðan leik um bronsið en vonandi spilum við móti AG svo við getum haft það gaman með strákunum úr landsliðinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×