Handbolti

Handboltamarkvörður tók til sinna ráða og skoraði glæsimark - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Golub Doknic er 30 ára markvörður sem spilar með austurríska liðinu Alpla Hard. Hann sýndi frábær tilþrif á dögunum þegar Alpla Hard tryggði sér austurríska meistaratitilinn í handbolta með sigri á Tirol Insbruck.

Golub Doknic komst þá inn í sendingu þegar Tirol-liðið reyndi hraðaupphlaup en í stað þess að senda boltann á samherja þá fór hann bara alla leið sjálfur og skoraði með þrumuskoti. Það er hægt að sjá þetta glæsimark með því að smella hér fyrir ofan.

Doknic brunaði til baka og fagnaðí vel þegar Tirol-liðinu tókst ekki að skora mark í bakið á honum. Doknic kom Alpla Hard þarna í 13-10 rétt fyrir hálfleik en liðið vann leikinn síðan 26-19 og þar með úrslitaeinvígið 2-1. Þetta var eina mark hans í lokaúrslitunum.

Eftir leikinn tilkynnti íþróttastjóri Alpla Hard að félagið væri búið að gera nýjan samning við Golub Doknic til ársins 2015 en hann var að klára sitt fyrsta tímabil með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×