Fótbolti

HJK kjöldró KR í Helsinki | 7-0 sigur finnska liðsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Daníel
HJK frá Helsinki vann stórsigur 7-0 gegn KR í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Finnlandi í dag. Heimamenn leiddu með tveimur mörkum í hálfleik og bættu við fimm mörkum áður en yfir lauk í síðari hálfleiknum.

Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútunum en á 13. mínútu komust Finnarnir yfir eftir mistök í vörn KR. Juho Mäkelä skoraði þá af stuttu færi.

Dofri Snorrason og Óskar Örn Hauksson áttu ágætar tilraunir á hinum enda vallarins áður en ógæfan dundi aftur yfir. Guðmundur Reynir Gunnarsson braut þá af sér í vítateig KR-inga. Mika Väyrynen steig á punktinn og tvöfaldaði forystu heimamanna.

Þorsteinn Már Ragnarsson fékk fínt færi skömmu síðar til þess að minnka muninn fyrir KR en brást bogalistin. Finnarnir tveimur mörkum yfir í hálfleik.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, skipti Emil Atlasyni inn fyrir Dofra Snorrason í hálfleik en aftur fengu gestirnir ískalda vatnsgusu í andlitið. Eftir aðeins þriggja mínútna leik í síðari hálfleik skoraði Joel Pohjanpalo með hörkuskoti fyrir utan vítateig. 3-0 og útlitið allt annað en gott. Það átti eftir að versna til muna.

Rasmus Schüller skoraði fjórða mark Finnanna á 57. mínútu áður en Joel Pohjanpalo skoraði annað mark sitt á 67. mínútu. Skot hans hafði viðkomu í Rhys Weston varnarmanni KR og fór þaðan í netið. Staðan orðin 5-0 en Finnarnir voru, ólíkt KR-ingum, ekki hættir.

Juho Mäkelä átti eftir að niðurlægja Íslands- og bikarmeistarana enn frekar. Hann skoraði tvö mörk á fimm mínútna kafla seint í síðari hálfleik og Finnarnir komnir í 7-0.

Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, og Þröstur Emilsson lýstu leiknum í KR-útvarpinu. Samkvæmt lýsingu þeirra refsuðu Finnarnir KR-ingum ítrekað og var varnarleikur Vesturbæjarliðsins í molum.

Stórsigur HJK raunin og möguleikar KR-inga á áframhaldandi þátttöku í forkeppni Meistaradeildar Evrópu svo gott sem úr sögunni.

KR-ingar léku án Kjartans Henry Finnbogasonar og Gunnars Þórs Gunnarssonar sem glíma við meiðsli. Hvorugur ferðaðist með liðinu til Finnlands.

Byrjunarlið KR í leiknum (4:3:3/4:5:1)

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson

Vörn: Magnús Már Lúðvíksson, Rhys Weston, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson

Miðja: Bjarni Guðjónsson, Viktor Bjarki Arnarson og Baldur Sigurðsson.

Kantmenn: Dofri Snorrason og Óskar Örn Hauksson

Framherji: Þorsteinn Már Ragnarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×