Níu Napoli-menn réðu ekki við Juventus í ítalska súperbikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 14:38 Mynd/AFP
Juventus vann í dag Súperbikarinn á Ítalíu í árlegum leik ítölsku meistaranna og ítölsku bikarmeistaranna en leikið var annað árið í röð í Fuglahreiðrinu í Peking í Kína. Meistararnir í Juventus unnu 4-2 sigur á bikarmeisturum Napoli eftir framlengdan leik. Mikil dramatík var í þessum leik en það nægði ekki Napoli-liðinu að komast tvisvar sinnum yfir í venjulegum leiktíma. Goran Pandev og Juan Camilo Zúniga fengu báðir að líta rauða spjaldið í lok leiks og Juventus skoraði síðan tvö mörk í framlengingunni þegar liðið var tveimur mönnum fleiri inn á vellinum. Edinson Cavani kom Napoli í 1-0 á 27. mínútu en Kwadwo Asamoah jafnaði fyrir Juve á 37. mínútu. Goran Pandev kom Napoli aftur yfir fjórum mínútum fyrir hálfleik en Arturo Vidal jafnaði í 2-2 úr vítaspyrnu á 74. mínútu. Goran Pandev fékk síðan beint rautt spjald fyrir mótmæli við aðstoðardómara á 86. mínútu og á fjórðu mínútu í uppbótartíma fauk Juan Camilo Zúnig einnig útaf þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Walter Mazzarri, þjálfari Napoli, var í framhaldinu rekinn upp í stúku fyrir mótmæli. Juventus komst yfir á 97. mínútu með sjálfsmarki Christian Maggio eftir aukaspyrnu Andrea Pirlo og varamaðurinn Mirko Vucinic inngislaði síðan sigur Juventus á 101. mínútu. Þetta er í fimmta sinn sem Juventus vinnur ítalska súperbikarinn en félagið tók þennan bikar einnig 1995. 1997, 2002 og 2003.
Ítalski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira