Handbolti

27 marka sigur Kiel á áströlsku liði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson í leik með Kiel.
Aron Pálmarsson í leik með Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Kiel vann í dag stórsigur á ástralska liðinu Sydney University í heimsmeistarakeppni félagsliða sem nú fer fram í Katar. Lokatölur voru 40-13, Þýskalands- og Evrópumeisturunum í vil.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Kiel og var næstmarkahæstur. Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kiel í leiknum en liðið er nú með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum í riðlakeppninni. Kiel dugir jafntefli gegn Asíumeisturum Mudhar frá Sádí-Arabíu á morgun til að vinna riðilinn.

Eins og tölurnar bera með sér var sigur Kiel afar öruggur en annað var upp á teningnum í gær, þegar að Kiel vann nauman sigur á heimaliðinu Al Sadd, 29-26, eftir að síðarnefnda liðið hafði sjö marka forystu í hálfleik, 16-9.

Það skal þó tekið fram að Al Sadd er nánast eingöngu skipað leikmönnum franska liðsins Montpellier á þessu móti. Al Sadd greiddi leikmönnunum háar fjárhæðir til að spila með liðinu á þessu móti sem lýkur nú um helgina.

Umræddir leikmenn eru þeir Nikola Karabatic, William Accambray, Issam Tej, Wissem Hmam, Cristian Malmagro, Primoz Prost og Dragan Gajic. Samanlagt skoruðu þeir öll mörk Al Sadd gegn Kiel í gær nema fimm.

Fyrr í dag vann Atletico Madrid sigur á Matodista Sao Bernardo frá Brasilíu í hinum riðlinum, 34-27. Spánverjarnir eru sigurstranglegastir í þeim riðli og stefnir því að Evrópuliðin tvö mætist í úrslitaleik keppninnar, rétt eins og í Meistaradeild Evrópu í vor. Þá hafði Kiel betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×