Handbolti

Füchse Berlin enn með fullt hús

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin tróna á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan sigur á Essen í dag, 31-24.

Sigurinn var öruggur en Füchse Berlin hefur unnið alla fjóra leiki sína í upphafi tímabilsins.

Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, er einnig með átta stig eftir fjóra leiki. Flensburg og Kiel eru einnig með fullt hús stiga en hvort lið hefur bara spilað tvo leiki til þessa.

Füchse Berlin spilaði vel í bæði sókn og vörn en markahæstir voru þeir Ivan Nincevic og Sven-Sören Christophersen með fimm mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×