Handbolti

Snorri Steinn mun semja í vikunni

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum íþróttadeildar mun landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson ganga frá samningi við danskt lið í vikunni.

Snorri hefur verið án félags síðan félag hans, AG, fór á hausinn á miðjum Ólympíuleikum.

Samkvæmt okkar heimildum hefur það legið fyrir í nokkurn tíma að Snorri myndi leika áfram í Danmörku en samningar hafa tekið lengri tíma en búist var við í fyrstu.

Fjölmörg félög sýndu Snorra áhuga og hafnaði hann meðal annars tilboði frá félagi í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×