Fótbolti

Sannfærandi sigur Newcastle

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Newcastle átti ekki í miklum vandræðum með franska liðið Bordeaux en Frakkarnir voru efstir í riðlinum fyrir leikinn. Newcastle skoraði þrjú mörk á fyrstu 49 mínútunum og vann öruggan 3-0 sigur.

Shola Ameobi kom Newcastle í 1-0 á 16. mínútu og á tíma þegar mark heimamanna lá í loftinu. Yohan Cabaye fann Gabriel Obertan á kantinum og Obertan gerði vel í að komast framhjá varnarmanni og gefa boltanna á Ameobi sen skoraði auðveldlega.

Newcastle komst síðan í 2-0 fimm mínútum fyrir hálfleik þegar Henrique sendi boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Danny Simpson.

Papiss Cisse bætti við þriðja markinu á 49. mínútu eftir sendingu frá Shane Ferguson en endursýningar sýndu þó að hann var rangstæður og því átti markið aldrei að standa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×