Handbolti

Íslenski Daninn raðar inn mörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hans Lindberg.
Hans Lindberg. Mynd/Nordic Photos/Getty
Danski landsliðsmaðurinn Hans Lindberg hefur spilað frábærlega með HSV Hamburg það sem af er tímabilinu. Lindberg skoraði tíu mörk í dag þegar HSV vann fjögurra marka útisigur á franska liðinu Montpellier, 33-29.

Báðir foreldrar Hans Lindberg eru íslenskir en hann er uppalinn í Danmörku og spilar með danska landsliðinu.

Lindberg er núna búinn að skora 89 mörk í fyrstu 9 leikjum tímabilsins eða 9,9 mörk að meðaltali í leik.

Hann hefur skorað 29 mörk í 3 leikjum í Meistaradeildinni og er markahæstur í þýsku úrvalsdeildinni með 60 mörk í fyrstu 6 leikjunum sínum.

HSV hefur náð í 5 af 6 stigum eins og Flensburg-Handewitt en þessi þýsku lið eru efst og jöfn í A-riðli Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×