Handbolti

Snorri með stórleik í sigri GOG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn í leik með AG á síðasta tímabili.
Snorri Steinn í leik með AG á síðasta tímabili. Nordic Photos / Getty Images
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk þegar að lið hans, GOG, vann Midtjylland í dönsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

GOG vann leikinn, 33-26, og er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar að loknum sjö umferðum.

Snorri Steinn gekk í raðir GOG um síðustu mánaðamót en hann lék síðast með AG Kaupmannahöfn en félagið fór á hausinn í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×