Brú Ólafs Elíassonar orðin að dómsmáli í Kaupmannahöfn 22. október 2012 06:58
Bygging reiðhjólabrúar í Kaupmannahöfn sem hönnuð var af Ólafi Elíassyni er orðin að máli fyrir héraðsdómi í borginni. Brúin á að liðka fyrir umferð reiðhjólafólks frá miðborg Kaupmannahafnar til Christianshavn yfir Christianshavn Kanal og áfram út á Holmen. Ólafur var fenginn til að hanna þessa brú en bygging hennar er borguð af Nordeasjóðnum. Það er einn af íbúum Christianshavn, Anders Zorn að nafni, sem höfðar málið þar sem hann segir brúna vera brot á deiliskipulagi fyrir þennan borgarhluta. Brúin sé mun stærri og umfangsmeiri en sú göngubrú sem skipulagið gerir ráð fyrir. Þar að auki sé búið að breyta þessari einföldu göngubrú í stóra reiðhjólabrú með 25 metra háum víramöstrum og útskotum þar sem gangandi og hjólandi geta hvílt sig og notið útsýnisins. Lögmaður Zorn spyr í samtali við Politiken hvort nokkur hafi áður séð göngubrú sem er 25 metrar á hæð. Zorn hefur áður kært byggingu brúarinnar til umhverfisyfirvalda en án árangurs. Bygging brúarinnar er langt komin en taka á hana í notkun á næsta ári.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira