Handbolti

Vignir með sex í jafnteflisleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vignir Svavarsson í leik með Minden.
Vignir Svavarsson í leik með Minden. Nordic Photos / getty Images
Minden og Balingen gerðu í dag jafntefli, 31-31, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Vignir Svavarsson skoraði sex mörk fyrir Minden.

Minden var með sex marka forystu í hálfleik, 19-13, en Balingen skoraði síðustu fjögur mörk leiksins og jafnaði metin á lokasekúndu leiksins.

Þá tapaði Grosswallstadt fyrir Gummersbach með minnsta mun, 25-24. Sverre Andreas Jakobsson lék með fyrrnefnda liðinu og skoraði eitt mark.

Þá var einnig leikið í þýsku B-deildinni. Arnór Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Bergischer HC sem vann öruggan sigur á Ferndorf, 30-18.

Aue hafði betur gegn Friesenheim, 30-26, en Sveinbjörn Pétursson leikur í marki fyrrnefnda liðsins. Þjálfari Aue er Rúnar Sigtryggsson.

Minden er í ellefta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en Grosswallstadt í sautjánda og næstneðsta sæti.

Bergischer HC er á toppnum í B-deildinni en Aue er í neðsta sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×