Handbolti

HK tapaði stórt í Slóveníu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslandsmeistarar HK töpuðu með sautján marka mun fyrir RK Maribor Branik í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-bikarkeppni karla. Lokatölur voru 42-25.

Slóvenar höfðu undirtökin í leiknum lengst af eins og tölurnar bera með sér. Liðin mætast aftur ytra á morgun.

Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna HK með átta mörk. Eyþór Magnússon skoraði fjögur mörk og þeir Daníel Einarsson og Garðar Svansson þrjú hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×