Handbolti

Róbert skoraði fimm í sigri PSG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson í leik með PSG.
Róbert Gunnarsson í leik með PSG. Nordic Photos / AFP
PSG Handball er enn með fullt hús stiga í frönsku úrvalsdeildinni en liðið hafði betur gegn Dunkerque í toppslag deildarinnar í gær, 36-30.

Dunkerque er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig en liðið var þó alltaf skrefi á eftir Parísarliðinu í gær. Staðan í hálfleik var 19-16, PSG í vil.

Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir PSG en markahæstir voru þeir Mikkel Hansen og Mladen Bojinovic með fimm mörk hvor.

Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×