Handbolti

Atli Sveinn samdi við Víking

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Sveinn Þórarinsson.
Atli Sveinn Þórarinsson. Mynd/HAG
Atli Sveinn Þórarinsson hefur gert samning við Víking um að spila með liðinu út þessa leiktíð. Atli Sveinn mun leika með handboltaliði félagsins í 1. deild karla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu en Atli Sveinn mun spila sinn fyrsta leik á móti Fylki í kvöld.

Atli Sveinn er þekktastur fyrir knattspyrnuiðkun sína og hefur spilað með Val undanfarin sjö ár og verið fyrirliði Hlíðarendaliðsins frá og með 2010.

Atli Sveinn lék handbolta upp alla yngri flokka hjá KA og hefur nú tekið fram handboltaskóna eftir tólf ára frí.

„Hann hefur æft vel undanfarnar vikur en það hefur verið mjög skemmtilegt að sjá hann rifja upp handboltatakta eftir um 12 ára fjarveru. Hann er sterkur persónuleiki og leiðtogi en við erum vissir um að þegar hann verður kominn á fullt skrið þá muni hann styrkja okkar hóp mikið," segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×