Handbolti

Frítt á Evrópuleik Vals í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leiknum í gær. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er hér með boltann.
Úr leiknum í gær. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er hér með boltann. Mynd/Anton
Valur mætir HC Zalau í síðari leik liðanna í EHF-bikarkeppninni í Vodafone-höllinni í kvöld en félagið hefur ákveðið að rukka ekki inn á leikinn.

Valur vann fyrri leikinn í gær, 24-23, en HC Zalau er frá Rúmeníu og lék til úrslita í EHF-bikarkeppninni í fyrra. Sæti í 16-liða úrslitunum er undir og því mikið í húfi.

Leikurinn hefst klukkan 18.30 en Valskonum dugir jafntefli til að komast áfram. Heldur dræm mæting var á leikinn í gær og hvetja leikmenn liðsins alla til að mæta í kvöld og styðja þær til dáða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×