Handbolti

Svekkjandi tap hjá Sverre

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sverre í leik með Grosswallstadt, lengst til vinstri.
Sverre í leik með Grosswallstadt, lengst til vinstri. Nordic Photos / Getty Images
Sverre Jakobsson og félagar í Grosswallstadt þurftu að játa sig sigraða gegn Neuhausen í miklum fallbaráttuslag í þýsku úrvalsdeildinni.

Neuhausen vann, 32-27, eftir að hafa verið með tveggja marka forystu í hálfleik. Sverre spilaði í vörn Grosswallstadt.

Grosswallstadt er í næstneðsta sæti deildarinnar með fimm stig en Neuhausen komst úr fallsæti með sigrinum. Liðið er nú í fimmtánda sæti með sjö stig.

Þá var spilað í Svíþjóð, þar sem Kristianstad vann sigur á Ystad, 31-25. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir fyrrnefnda liðið.

Kristianstad er á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 23 stig eftir þrettán leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×