Handbolti

Guif vann Íslendingaslaginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fjórir Íslendingar komu við sögu þegar að Guif og Hammarby áttust við í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Guif vann nokkuð öruggan sigur, 27-20, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 13-10.

Kristján Andrésson er þjálfari Guif en bróðir hans, Haukur, skoraði fjögur mörk í leiknum. Línumaðurinn Heimir Óli Heimisson skoraði þrjú.

Elvar Friðriksson skoraði svo þrjú mörk fyrir Hammarby í leiknum í kvöld.

Guif er í þrijða sæti deildarinnar með átján stig en Hammarby í því áttunda með þrettán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×