Handbolti

Löwen enn með fullt hús stiga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, vann í kvöld þriggja marka útisigur á Minden, 26-23, í þýsku úrvalsdeildinni.

Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löwen sem var skrefi á undan allan leikinn. Staðan í hálfleik var 13-11, Löwen í vil. Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Minden í leiknum.

Löwen er því enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar en liðið hefur spilað þrettán leiki á tímabilinu. Kiel kemur næst með 23 stig en á leik til góða.

Þá vann hafði Magdeburg betur gegn Hannover-Burgdorf, 34-31. Björgvin Páll Gústavsson spilaði ekki með liðinu í kvöld vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×