Handbolti

Seferovic leystur undan samningi hjá Val

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Patrekur Jóhannesson er þjálfari Valsmanna.
Patrekur Jóhannesson er þjálfari Valsmanna. Fréttablaðið/Vilhelm
Valsmenn hafa slitið samningi sínum við króatísku skyttuna Adam Seferovic. Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, staðfesti þetta í samtali við Handbolti.org í dag.

Á síðunni kemur fram að riftingin hafi ekki átt sér langan aðdraganda. Um sameiginlega ákvörðun Ómars og Patreks Jóhannessonar, þjálfara Vals, hafi verið að ræða.

Adam Seferovic lék fjóra leiki með Valsmönnum og skoraði í þeim fjögur mörk. Hann meiddist í fyrstu umferð tímabilsins þegar Valur tapaði gegn HK í Digranesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×