Menntamálaráðherra rekinn úr vestfirskri lopapeysu á Alþingi 19. desember 2012 20:57 Katrín Jakobsdóttir var rekin úr lopapeysunni ásamt fleiri þingmönnum. „
Þetta voru nú vinsamleg tilmæli, en maður hlýðir alltaf forsetanum," segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem var rekin úr lopapeysu sem hún var klædd í á Alþingi í dag. Það þótti ekki æskilegt að vera klæddur í lopapeysu á Alþingi í dag að mati forseta Alþingis. „Þetta byrjaði nú á því að Oddný [G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar] var rekin úr sinni peysu, hún benti þá á okkur," útskýrir Katrín, en auk hennar var Árna Johnsen, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, gert að klæða sig úr sinni lopapeysu. Katrín segist hafa verið í peysu undir, það hafi því ekki verið neinum vandkvæðum bundið að klæða sig úr hlýrri peysunni, „en Árni fór heim og náði í jakka," bætir Katrín við. Spurð hvort þeim hafi verið kalt á eftir svarar Katrín hlæjandi að það hafi nú ekki væst um þau á eftir. En var lopapeysan íslensk? „Já, þetta var ægilega hugguleg peysa með vestfirsku lopapeysumunstri," svarar menntamálaráðherrann sem var komin heim til sín þegar blaðamaður hafði samband við hann. „Og ég er bara í henni þar," bætir Katrín hlæjandi við. Reglur um klæðnað þingmanna eru strangar, þó konum leyfist meira hvað það varðar. En þó er nokkuð ljóst að íslenska lopapeysan er ekki æskileg á Alþingi.
Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Banaslys við Fossá Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Fleiri fréttir Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Sjá meira