Evrópuvæðing án áhrifa Ólafur Stephensen skrifar 23. janúar 2012 06:00 Í síðustu viku kom út viðamikil skýrsla á vegum norskra stjórnvalda, þar sem samningum Noregs við Evrópusambandið er lýst. Sú skýrsla er um leið að verulegu leyti lýsing á sambandi Íslands við ESB, því að marga samninga við ESB eiga Ísland og Noregur sameiginlega. Þar er samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið klárlega viðamestur. Norska nefndin sem skoðaði málið kemst að þeirri niðurstöðu að EES og aðrir samningar Noregs við ESB hafi falið í sér umfangsmikla „Evrópuvæðingu" Noregs, á miklu fleiri sviðum en flesta gruni og meðal annars hafi það komið nefndinni, sem þó var skipuð færustu sérfræðingum, á óvart hversu aðlagað norskt samfélag og löggjöf sé orðið því sem gerist í ESB. Það helgist þó ekki sízt af þörfinni á því að finna sameiginlegar lausnir á vandamálum og viðfangsefnum sem ekki virða landamæri og það útheimti skuldbindandi alþjóðlegt samstarf. Grundvöllur samstarfsins sé að Noregur deili bæði gildum og hagsmunum með ESB-ríkjunum 27. Óhætt er að fullyrða að það sama eigi við um Ísland. Nefndin telur EES-samninginn hafa þjónað hagsmunum Noregs vel, en vandamálið við hann sé fyrst og fremst lýðræðislegt; Noregur hafi skuldbundið sig til að hlíta bæði stefnu Evrópusambandsins og lagasafni þess á mjög breiðu sviði, án þess að hafa aðild að ESB eða atkvæðisrétt innan sambandsins. „Þetta er það verð sem Noregur greiðir fyrir að njóta ávinningsins af evrópskum samruna án þess að vera meðlimur í þeim samtökum sem knýja áfram þróunina," segir í norsku skýrslunni. Það sama á að sjálfsögðu við um Ísland. Þeir sem tala gegn aðild Íslands að ESB vegna lýðræðishallans svokallaða, sem felst í því að stofnanir sambandsins aðrar en Evrópuþingið sækja ekki umboð sitt beint til borgaranna, gleyma yfirleitt að geta þess að Ísland býr við tvöfaldan lýðræðishalla. Alþingi samþykkir löggjöf sem það fær senda í pósti frá Brussel án þess að hafa á hana nokkur áhrif. Hér eins og í Noregi á það við að áhrif samninga við ESB eru víðtækari en flestir átta sig á og eða sáu fyrir er EES-samstarfið hófst fyrir bráðum tveimur áratugum. Á sínum tíma komst nefnd lögfræðinga að því að það framsal íslenzks ríkisvalds, sem fælist í EES-samningnum, væri ekki stjórnarskrárbrot vegna þess að það væri á „afmörkuðu sviði". Þegar horft er til baka á þau gríðarlegu áhrif sem samningurinn hefur haft hér á landi er nánast útilokað að sú túlkun standist. Þeir sem halda því fram að með aðild að ESB yrði mikil eðlisbreyting á íslenzkri löggjöf og samfélagi eru tuttugu árum eða svo á eftir tímanum. Breytingin er þegar orðin, Evrópuvæðingin er ótrúlega víðtæk. Vandinn er sá að við höfum minna um hana að segja en við ættum að gera. Með aðild að ESB fengi Ísland bein áhrif á ótal ákvarðanir, sem snerta íslenzka hagsmuni og verða sjálfkrafa hluti af íslenzkri löggjöf. Það er rangtúlkun að halda því fram að aðild að ESB feli í sér missi áhrifa og fullveldis. Þvert á móti myndi hún styrkja lýðræðið og hafa í för með sér að Ísland hefði meiri áhrif á eigin örlög. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Trúnaðarmannatrygging og Eflingarvottun: Tæknikratalausn sem mun líklega ekki koma Guðröður Atli Jónsson Skoðun Vilja leiða þjóðina blinda til Brussel Tómas Þór Þórðarson Skoðun Er þetta boðlegt fyrir fullvalda þjóð? Kristján Vigfússon Skoðun Leið Sigmundar Davíðs og Trump eða fjölga valkostum fyrir Ísland? María Svanfríður Malmquist Skoðun Ísland er ekki til sölu Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Ein besta fjárfesting heilbrigðiskerfisins? Gunnlaugur Már Briem Skoðun Lokað klukkan sex og þá byrjar kvöldið Steindór Þórarinsson Skoðun „Við erum með lækna sem vilja vinna — en kerfið leyfir þeim það ekki“ Einar Sveinn Ólafsson Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Trúnaðarmannatrygging og Eflingarvottun: Tæknikratalausn sem mun líklega ekki koma Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Leið Sigmundar Davíðs og Trump eða fjölga valkostum fyrir Ísland? María Svanfríður Malmquist Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Trúnaðarmannatrygging og Eflingarvottun: Tæknikratalausn sem mun líklega ekki koma Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Leið Sigmundar Davíðs og Trump eða fjölga valkostum fyrir Ísland? María Svanfríður Malmquist Skoðun