Öll flóra raftónlistar undir jökli 28. júní 2012 08:00 Pan Thorarensen og Andri Már Arnlaugsson skipuleggjendur Extreme Chill Festival - Undir Jökli sem verður haldin um helgina á Hellissandi með íslenska landsliðinu í raftónlist.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR „
Hinn breski Mixmaster Morris spilar en hann er stórt nafn í þessum geira,“ segir Pan Thorarensen, einn skipuleggjenda raftónlistarhátíðarinnar Extreme Chill Festival – Undir Jökli, sem hefst á morgun og stendur fram á sunnudag á Hellissandi við Snæfellsjökul. Hátíðin er haldin í þriðja sinn í ár í félagsheimilinu Röst og utandyra með lifandi flutningi og plötusnúðum. „Við héldum fyrstu hátíðina árið 2010 en fengum hugmyndina árið 2008 þegar við feðgarnir í hljómsveitinni Stereo Hypnosis vorum við upptökur á plötunni Hypnogogia hér á Hellissandi,“ segir Pan sem spilar bæði með hljómsveit sinni og sem Beatmakin Troopa um helgina. Raftónlist er í aðalhlutverki á hátíðinni og er flakkað á milli ólíkra tegunda slíkrar tónlistar. „Þetta er öll flóran. Uppbyggingin verður róleg með listgjörningum og myndbandsverkum en um miðja nótt fer þetta út í hraðari tónlist og teknó,“ segir Pan og nefnir að á hátíðinni megi finna eitthvað fyrir alla. „Íslenska landsliðið í raftónlist verður hérna.“ Hann nefnir máli sínu til stuðnings tónlistarmenn á borð við Futuregrapher, Reptilicus, Bix, Captain Fufanu, Inferno 5, Samaris og Ruxpin. Tveir erlendir raftónlistarmenn heiðra hátíðina með nærveru sinni. Það er hinn fyrrnefndi og merki Mixmaster Morris ásamt hinum eistneska Kaido Kirikmae sem verður með eins konar tónlistargjörning. Hátíðin hefst á morgun með tónleikum í félagsheimilinu Röst kl. 19.30 þar sem fjölskrúðugir tónar verða fluttir yfir helgina. Miðasala fer fram á Midi.is og fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða. - hþt
Tónlist Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Menning Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira