Handbolti

Toppsætið undir á Ásvöllum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson er með 36 mörk í 5 leikjum.
Stefán Rafn Sigurmannsson er með 36 mörk í 5 leikjum. Mynd/Daníel
Haukar og Akureyri mætast í dag í Schenker-höllinni á Ásvöllum í lokaleik 6. umferðar N1-deildar karla, en það lið sem vinnur leikinn mun koma sér vel fyrir í toppsæti deildarinnar.

Haukar eru eina taplausa liðið og geta náð fjögurra stiga forskoti með sigri.

Akureyringar töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu umferð en eru með fullt hús í tveimur ferðum sínum suður á þessu tímabili. Leikurinn hefst klukkan 15.45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×