Ólöf Helga glímir við taugaskemmdir í skothendinni - ferillinn í hættu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2013 18:32 Ólöf Helga lyfti báðum stóru bikurunum á síðustu leiktíð. Mynd/Valli
Ólöf Helga Pálsdóttir, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur á síðasta tímabili og núverandi leikmaður Grindavíkur í Dominos-deild kvenna hefur nánast ekkert getað spilað með Grindavíkurliðinu á þessu tímabili. Víkurfréttir segja frá því í dag að það sér óvíst hvort Ólöf Helga leiki hreinlega aftur körfubolta en hún er 27 ára gömul. Ólöf lenti í vinnuslysi í ágúst í fyrra sem varð til þess að taugaskemmdir hrjá hana í allri hægri hendinni. Ólöf getur ekkert leikið körfubolta og það sem meira er þá er hún í vandræðum með ýmsa daglega hluti. „Ég var kannski full jákvæð þegar þetta kom fyrst upp og fór geyst af stað. Ég byrjaði að spila og þá kom strax bakslag. Ég fór til einkaþjálfara og fannst ég verða orðin betri. Ég leitaði svo til sérfræðings sem sagði að ég mætti ekkert gera og um verulegar taugaskemmdir væri að ræða," segir Ólöf Helga í viðtali við VF en þá má sjá alla fréttina með því að smella hér. „Þetta hefur verið mjög erfitt en ég reyni að vera bara mjög jákvæð. Ég hef hugsað til þess að hætta en reyni eftir fremsta megni að forðast þær hugsanir. Ég reyni að gera eins mikið og ég get til þess að halda mér við efnið. Körfubolti hefur verið líf mitt frá því að ég man eftir mér og því er þetta ótrúlega erfitt," segir Ólöf Helga í fyrrnefndu viðtali við VF.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira