Fótbolti

Bale enn og aftur hetja Tottenham

Nordic Photos / Getty Images
Gareth Bale tryggði Tottenham 2-1 sigur á Lyon með marki beint úr aukaspyrnu á lokamínútu uppbótartíma leiksins. Þrjú glæsileg mörk voru skoruð í leiknum.

Bale skoraði bæði mörk Tottenham í leiknum, það fyrra einnig úr aukaspyrnu en það kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Samuel Umtiti jafnaði þó metin á 55. mínútu með viðstöðulausu bylmingsskoti efst í markvinkilinn fjær. Skotið var algjörlega óverjandi fyrir Brad Friedel í marki Tottenham.

Leikurinn virtist stefna í 1-1 jafntefli þegar að Tottenham fékk aukaspyrnu rétt utan vítateigs á 93. mínútu leiksins. Bale stillti sér upp og skoraði sigurmarkið, rétt eins og hann gerði gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Bale hefur nú skorað öll fjögur mörk Tottenham í síðustu tveimur leikjum liðsins og alls sjö mörk í fimm leikjum með bæði félagsliði sínu og landsliði á aðeins rúmum tveimur vikum.

Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×